Íslendingur semur við Rússa fyrir hönd WTO Símon Birgisson skrifar 4. júní 2011 13:00 Stefán Haukur Jóhannesson.
Íslendingur leiðir viðræður Alþjóðviðskiptastofnunarinnar við Rússa en leiðtogar G8 ríkjanna telja afar mikilvægt að Rússar gangi til liðs við stofnunina sem leggur grunninn að viðskiptum heimsins. Leiðtogar G8 ríkjanna róa nú öllum árum að því að ljúka viðræðunum við Rússa sem staðið hafa yfir allt frá árinu 1993. Barack Obama, bandaríkjaforseti, hvatti til þess fyrr í vikunni að Rússar gengju til liðs við stofnunina. Stefán Haukur Jóhannesson, formaður samninganefndar Íslands við ESB, leiðir viðræðurnar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar við Rússa. „Rússland er síðasta stóra hagkerfið sem stendur fyrir utan þessa stofnun, WTO, sem setur grunnreglur fyrir þjóðir heims um viðskipti. Nú er mikill pólitískur meðbyr að þeir gerist aðilar. Rússland er síðasta stóra hagkerfið sem enn stendur fyrir utan,“ segir Stefán. Er þetta ekki heiður fyrir Íslending að standa í svona stórræðum? „Þetta er viðamikið verkefni og ég hef sinnt þessu frá 2003. Það er í sjálfu sér gaman að því að það sé fulltrúi Íslands sem sinnir þessu hlutverki og er vísbending um að Ísland sem slíkt hafi góða stöðu í samfélagi þjóðanna,“ segir Stefán en tekur fram að hann sé ekki fulltrúi landsins heldur hlutlægur aðili sem miðli málum. Hann segir helsti ásteytingarsteinninn vera landbúnaðarmál og reglur um fjárfestingar í Rússlandi. Ekki ósvipað og í samningaviðræðum Íslands við ESB. Mikið sé í húfi. „Það eru nokkrir mjög erfiðir kaflar eftir og er að renna upp ögurstund í viðræðunum við Rússa,“ segir Stefán.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Sjá meira