Segja kjarasamning til þriggja ára í uppnámi Höskuldur Kári Schram skrifar 4. júní 2011 19:00
Aðilar vinnumarkaðarins saka forystumenn ríkisstjórnarinnar um að ganga á bak orða sinna og segja kjarasamninga til þriggja ára í uppnámi. Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins undirrituðu í byrjun síðasta mánaðar kjarasamninga til þriggja ára. Samhliða undirritun gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu þar sem því var meðal annars heitið að jafna stöðu lífeyrisþega og koma á fót nefndum til að fjalla um kvóta og samgöngumál. Samningsaðilar telja að ríkið hafi hingað til ekki staðið við þessi fyrirheit og jafnvel unnið gegn þeim. Samkvæmt sérsökum fyrirvara í samningunum er hægt slíta þeim fyrir tuttugasta og annan júní ef stjórnvöld standa ekki við sinn hlut. Alþýðusambandið hefur þegar gagnrýnt áform ríkisstjórnarinnar um leggja skatt á áunnin lífeyrisréttindi fólks á almennum vinnumarkaði en skattinn á nota til að fjármagna að hluta vaxtaniðurgreiðslur til almennings. Jóhanna Sigurðardóttir,forsætisráðherra var spurð út í málið á Alþingi í gær. „Ég trúi því ekki að þetta mál sem er fjármögnun á vaxtaniðurgreiðslum upp á tólf milljarða króna á tveimur árum sem var greitt út í fyrsta skipti í maí til 97 þúsund einstaklinga og komu fólki sannanlega vel sem eru mjög skuldugir og ekki síst í ASÍ félögunum að það skuli verða að því stórmáli að það tefli kjarasamningum til þriggja ára í hættu," sagði Jóhanna. Nefndirnar tvær sem áttu að fjalla annars vegar kvótamál og hins vegar samgöngumál hafa enn ekki tekið til starfa en upphaflega var miðað við fimmtánda mái í því sambandi. Vilhjálmur Egilson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að þetta skapi mikla óvissu. „Það er verið að setja okkur, Samtök atvinnulífsins, í alveg vonlausa stöðu," segir Vilhjálmur. Nauðsynlegt sé að finna leiðir til að auka fjárfestingu í samfélaginu til að gera vinnuveitendum kleift að standa undir umsömdum launahækkunum. „Við erum bara alls ekki í góðum málum ef samningarnir halda ekki og við erum ekki að fara atvinnuleiðina eins og við ætluðum okkur," sagði Vilhjálmur að lokum.
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira