Hannes sýknaður af 400 milljóna kröfu Glitnis 8. febrúar 2011 15:19
Hannes Smárason var sýknaður af 400 milljóna kr. kröfu skilanefndar Glitnis fyrir héraðsdómi í dag og þarf ekki að greiða hana að svo stöddu. Hinsvegar voru FI fjárfestingar, sem áður hétu Primus og er í eigu Hannesar, dæmdar til að greiða Glitni rúmlega 4,6 milljarða kr. Þegar aðalmeðferð málsins stóð yfir í síðasta mánuði sakaði lögmaður Hannesar skilanefndina um óeðlilega aðför að skjólstæðingi sínum. Lögmaður Glitnis svaraði því aftur á móti að lögsóknin væri lögleg og ekki byggð á neinu samsæri. Krafan upp á 400 milljónir kr. sem Hannes var sýknaður af var með sjálfskuldarábyrgð hans. Um var að ræða tvö kúlulán upp á 3,5 milljarða en inn í því er sjálfskuldarábyrgð Hannesar auk veðs í húseignum og lóðum, meðal annars á Þingvöllum. Þá voru einnig hlutabréf í FL Group og Byr lögð fram sem tryggingar á sínum tíma. Þess þarf varla að geta að þau bréf eru með öllu verðlaus í dag. Heildarskuldarstaða FI Fjárfestinga og félaga þar innanborðs gagnvart Glitni, reyndust í það heila nema rúmum tíu milljörðum króna. Glitnir krafðist 4,7 milljarða af FI fjárfestingum. Málskostnaður Hannesar fellur niður en FI fjárfestingar þurfa að greiða Glitni rúmlega milljón í málskostnað.
Tengdar fréttir Segir skilanefnd Glitnis ofsækja Hannes „Þessi lögsókn er ekki byggð á neinu samsæri og upphaf ræðu Gísla [Guðna Hall hrl.] er óskiljanlegt," svaraði lögmaður Glitnis, Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson, eftir að verjandi Hannesar Smárasonar, og félaga honum tengdum, hafði sakað skilanefnd Glitnis um óeðlilega aðför að skjólstæðingi sínu og allt að því ofsóknarkennda. Hóf hann ræðu sína á því að rifja upp málsókn skilanefndar Glitnis gegn Hannesi, Jóni Ásgeiri Jóhannessyn og fleirum í New York, þar sem málinu var vísað frá. 11. janúar 2011 13:00 Mest lesið Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Viðskipti innlent Björn Berg svarar lesendum: Eyðir alltaf neyðarsjóðnum í vitleysu Neytendur Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Sjá meira
Segir skilanefnd Glitnis ofsækja Hannes „Þessi lögsókn er ekki byggð á neinu samsæri og upphaf ræðu Gísla [Guðna Hall hrl.] er óskiljanlegt," svaraði lögmaður Glitnis, Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson, eftir að verjandi Hannesar Smárasonar, og félaga honum tengdum, hafði sakað skilanefnd Glitnis um óeðlilega aðför að skjólstæðingi sínu og allt að því ofsóknarkennda. Hóf hann ræðu sína á því að rifja upp málsókn skilanefndar Glitnis gegn Hannesi, Jóni Ásgeiri Jóhannessyn og fleirum í New York, þar sem málinu var vísað frá. 11. janúar 2011 13:00