Tapa riftunarmáli og fá ekki 150 milljónir 8. desember 2011 06:00 Landsbankinn samþykkti að kaupa víxlana tvo 3. október og kaupin gengu í gegn 6. október. Dómari segir að bankinn hefði lent í klandri ef hann hefði hætt við. Fréttablaðið/gva
Greiðslum upp á 150 milljónir, sem runnu frá Landsbankanum til sjóðs á vegum Íslenskra verðbréfa 6. október 2008, verður ekki rift þrátt fyrir kröfu slitastjórnar bankans þar um. Héraðsdómur Norðurlands eystra kvað upp svofelldan dóm í gær. Um var að ræða tvo víxla, eða skammtímaskuldabréf, sem Landsbankinn gaf út og sjóðurinn keypti. Þar með skuldaði bankinn sjóðnum 150 milljónir. Skilmálar víxlanna kváðu á um að ekki mætti greiða þá upp fyrir skráðan gjalddaga, sem var 5. nóvember 2008. Hinn 3. október, þremur dögum fyrir setningu neyðarlaganna, setti sjóðurinn víxlana á markað með það að markmiði að selja þá, sem var heimilt. Landsbankinn keypti bréfin og gengu þau kaup í gegn 6. október, daginn sem neyðarlögin voru sett. Slitastjórn bankans telur hins vegar að með þessu hafi skuldin í raun verið greidd en greiðslan dulbúin sem kaup á víxlunum. Uppgreiðslan var sem áður segir óheimil fyrir 5. nóvember. Þar með hafi peningar runnið út úr bankanum á kostnað annarra kröfuhafa. Á þetta fellst Þorsteinn Davíðsson héraðsdómari hins vegar ekki. Þótt líta verði svo á að með því að kaupa víxil sem bankinn gaf sjálfur út hafi hann í raun greitt skuldina sé ekkert komið fram í málinu um að tilgangurinn hafi verið sá að sjóður Íslenskra verðbréfa hagnaðist á kostnað annarra kröfuhafa. Þá megi vera ljóst að hefði bankinn að morgni 6. október ekki staðið við samþykkt kauptilboð sitt frá því föstudeginum áður „hefði traust til hans beðið verulega hnekki og allar tilraunir til að bjarga rekstri hans orðið mun þyngri í vöfum ef þá mögulegar." „Okkur finnst þetta ekki vel rökstudd niðurstaða," segir Herdís Hallmarsdóttir í slitastjórn Landsbankans. Hún segir að niðurstöðunni verði áfrýjað til Hæstaréttar, enda séu meiri hagsmunir undir en milljónirnar 150. „Þetta getur haft þýðingu fyrir okkur. Það eru fleiri mál sem við höfum verið með í undirbúningi sem byggja á svipuðum grundvelli og ef þetta er niðurstaðan þá mun okkur varla takast að rifta þeim greiðslum frekar en þessari." stigur@frettabladid.is
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira