Athygli, já takk Björk Þórarinsdóttir skrifar 22. september 2011 06:00 Nú stendur yfir samevrópsk ADHD vitundarvika og taka íslensku ADHD samtökin þátt í henni með kynningarátaki undir slagorðinu „ATHYGLI, JÁ TAKK". Markmið ADHD vitundarvikunnar er að auka þekkingu almennings á ADHD, eyða fordómum, auka skilning og efla stuðning við fólk með ADHD með opinskárri og skammarlausri umfjöllun. Lögð verður áhersla á hversu mikilvægt er að einstaklingar með ADHD mæti skilningi og njóti stuðnings í samfélaginu. Hvað er ADHD?Margir hafa skoðanir á ADHD en fáir vita í raun um hvað það snýst eða hvað það er. Gjarnan gætir misskilnings um ADHD; eins og að það hafi áhrif á greind eða að það sé óþekkt í börnum. Fordómar eru gjarnan í garð einstaklinga með ADHD sem nota lyf, eins og sást á einsleitri umræðu um lyfjameðferð við ADHD á vordögum. En hvað er þetta ADHD þá? ADHD stendur fyrir Attention Deficit Hyperactivity Disorder, sem er taugaþroskaröskun sem kemur yfirleitt fram snemma á ævinni. Orsakir ADHD eru líffræðilegar og stafa af truflun boðefna í stjórnstöð heilans. Aðaleinkenni ADHD er athyglisbrestur og hvatvísi og geta einstaklingar með ADHD ýmist verið ofvirkir eða vanvirkir. Einkennin geta verið mismunandi og mismikil en þau hafa áhrif á líf þeirra sem eru með ADHD, fjölskyldna þeirra og allra í nærumhverfinu. Þeim mæta margvíslegar áskoranir, því líf með ADHD er hvorki einfalt né auðvelt, síst í nútímasamfélagi. ADHD einkennin geta haft áhrif á starfshæfni, félagshæfni, skipulag, námsgetu og stjórnun. Fjöldi einstaklinga með ADHD á ÍslandiTalið er að um 7-10% barna glími við ADHD og 4,5% fullorðinna, það eru um 6.000 börn og 10.000 fullorðnir. ADHD samtökin vinna að málefnum einstaklinga með ADHD og veita þeim og aðstandendum þeirra stuðning. Auk þess standa samtökin fyrir fræðslu um ADHD, bæði fyrir fjölskyldur og fagfólk. ADHD samtökin á Íslandi fengu 2,7 m.kr. á fjárlögum árið 2010 og er það því deginum ljósara að samtökin eru fjárþurfi. ADHD samtökin hafa því látið útbúa fyrir sig endurskinsmerki með meinfyndnum teikningum Hugleiks Dagssonar sem seld verða til fjáröflunar. Allur ágóði sölunnar rennur óskiptur til ADHD samtakanna og fer í að efla starfsemi og þjónustu við einstaklinga með ADHD. Merkin eru nú þegar komin í sölu í öllum verslunum Krónunnar og eru einnig til sölu á vef samtakanna. Dagskrá ADHD vitundarvikunnarEvrópska ADHD vitundarvikan felst í því að uppfræða almenning, eyða fordómum og auka skilning og stuðning fyrir einstaklinga með ADHD. Þetta hyggjast ADHD samtökin gera með því að gefa öllum grunnskólum á landinu fræðslupakka sem þeir geta nýtt sér í innanhússfræðslu fyrir allt starfsfólk skólans. Með fræðslunni er lögð áhersla á hvernig umhverfið og aðstæður geta haft áhrif á börn með ADHD. Þá munu samtökin einnig vekja athygli á ADHD með auglýsingum og upplýstri umfjöllun sérfræðinga í fjölmiðlum. Málþing sem opið er öllum og í samstarfi við velferðarráðuneytið verður haldið föstudaginn 23. september undir yfirskriftinni „Nýjar lausnir – ný sýn". Þar verða kynnt verkefni sem sveitarfélögin hafa staðið að til bættrar þjónustu við börn með ADHD. Sýnd verða myndbönd um ungmenni með ADHD og kynnt verður Fókus, sjálfshjálparforrit fyrir fullorðna með ADHD. Nánari dagskrá málþingsins er að finna á www.adhd.is, nýrri vefsíðu samtakanna sem við hvetjum alla til að kynna sér. Þar má líka finna fjóra nýja bæklinga um ADHD og ýmsan gagnlegan fróðleik. Stuðningur skapar sigurvegaraVið vonumst til þess að yfirbragð vikunnar verði létt og skemmtilegt. Einstaklingar með ADHD geta verið mjög frjóir, skemmtilegir og orkumiklir. Stundum er gott að einbeita sér að jákvæðum þáttum ADHD og horfa á það jákvæða og skemmtilega sem fylgir. Með von um góðar undirtektir, því skilningur skiptir máli og stuðningur skapar sigurvegara! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? Skoðun Skoðun Skoðun Málþing bændasamtakanna frá sjónarhóli bónda Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Rauða rútan er mætt! Varist rauðu rútuna Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Er EES biðstofa eða endastöð? skrifar Skoðun Að vinna rökræður án röksemda, Þekkir þú Gish gallop tæknina? Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Þegar kennivald kemur í stað raka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisbaráttan hættir aldrei Anton Kristinn Guðmundsson skrifar Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar Skoðun „Ég er bara að vera hreinskilinn“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Lífsgæði og samheldni íslenskrar þjóðar Bjarni Herrera skrifar Skoðun Loddaralist í aðdraganda 29. ágúst Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Norðmenn eru farnir að horfa á okkur Baldur Johnsen skrifar Skoðun Dánaraðstoð án laga, en ekki án veruleika Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Eftir almyrkvann – þakklæti og stolt Gerður B. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Erum við að fóðra glæpaheiminn og bótakerfin? Davíð Bergmann skrifar Skoðun „Voðalega er hún Anna orðin erfið“ Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Um skuldir – og þakkarskuldir Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Árangur íslenskra stjórnmálamanna Steinn Kári Ragnarsson skrifar Skoðun Já, vegna allra Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Brandari dagsins Einar Helgason skrifar Skoðun Það sem aldrei hefur gerst getur hæglega gerst aftur! Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Af hverju sjómenn mættu mögulega segja „já“ Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Vélin verður sífellt klárari. En ekkert greindari. Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ég ætlaði bara að reyna skilja hvað ég væri að kjósa um Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um fullveldi og framsal þess Axel Kristinsson skrifar Skoðun Ævilangt ástarsamband við bláber Björg Árnadóttir skrifar Sjá meira
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Þegar fyrrverandi forseti stjórnlagadómstóls stærsta hagkerfis Evrópu varar við því að ríkið sé komið að vendipunkti er ástæða til að hlusta Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hver á hugmyndina um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu? Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Hugsum og spyrjum saman – Hvað þjónar Íslandi best til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Hver er raunveruleg hætta fyrir íslenskar veiðiheimildir við ESB-aðild? Þórir Garðarsson skrifar
Kostnaður og ávinningur af ESB-aðild – um 15-faldur miðað við brúttóframlag og 30-faldur miðað við nettóframlag Baldur Pétursson Skoðun