Mikill verðmunur á bókum - Penninn-Eymundsson neitar að taka þátt 8. desember 2011 10:21 Bækur. Eymundsson neitaði að taka þátt.
Mikill verðmunur er á bókum samkvæmt verðlaseftirliti ASÍ en í flestum tilvikum var 30 til 60 prósent verðmunur á hæsta og lægsta verði. Lægsta verðið var oftast að finna í versluninni Bónus eða á 25 titlum af 63, en sú verslun var einnig með fæsta bókatitla á boðstólum eða aðeins 29 af þeim 63 sem skoðaðir voru. Hæsta verðið var oftast að finna í bókabúðinni Iðu Lækjargötu eða í um helmingi tilvika. Bókabúðin Penninn- Eymundsson neitaði þátttöku í könnuninni. Bónus var oftast með lægsta verðið, þar á eftir var Bóksala stúdenta með lægsta verðið á 16 titlum af 63. Iða Lækjagötu var oftast með hæsta verðið í könnuninni á 32 titlum af 63. Bóksala stúdenta og Mál og menning Laugavegi voru með hæsta verðið á 29 titlum af 63. Mestur verðmunur í könnuninni var á sögubókinni Dauðinn í Dumbshafi, sem var á 4.193 kr. í Bónus en dýrust var hún í Hagkaup á 6.980 kr. sem er 2.787 kr. verðmunur eða 66%. Þýdda skáldverkið Djöflanýlendan var á lægsta verðinu hjá Nettó á 3.518 kr. en dýrust hjá Máli og menningu á 5.790 kr. sem er 2.272 kr. verðmunur eða 65%. Einnig var mikill verðmunur á matreiðslubókinni, Eldum íslenskt með kokkalandsliðinu. Hún kostaði 3.241 kr. í Bónus en var dýrust í Hagkaup á 5.199 kr. sem er 1.958 kr. verðmunur eða 60%. Minnstur verðmunur í könnuninni var á hljóðbókinni, Sólskinsbarn eftir Huldu Ólafsdóttur sem kostaði ýmist 2.490 kr. eða 2.499 kr. þar sem að hún var fáanleg. Mun meiri verðmunur var á ljóðabókinni Ísafjörður ægifagur sem var á lægsta verðinu hjá Office 1, 2.039 kr. en dýrust hjá Griffli á 2.207 kr. sem var 8% verðmunur.
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira