Sarkozy segir lausn um helgina vera einu leiðina 8. desember 2011 14:55 Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, leggur áherslu að menn komi sér saman um aðgerðir.
Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, segir ekkert annað koma til greina fyrir leiðtoga evruríkjanna en að komast að afgerandi niðurstöðum um helgina, hvað varðar viðbrögð við vaxandi skuldavanda þjóðríkja og banka í Evrópu. Sarkozy segir enn fremur að nauðsynlegt sé að grípa strax til aðgerða og kynna þær vel fyrir opnun markað á mánudag. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Sarkozy hélt í Brussell í dag en þar eru leiðtogar evruríkjanna samankomnir til þess að freista þess að ná samkomulagi um breytingar á sáttmála Evrópusambandsins, með það fyrir augum að leysa úr skuldavandanum í Evrópu. Einkum eru horft til þriggja meginatriða í þessum viðræðum, samkvæmt frásögn breska ríkisútvarpsins BBC. Í fyrsta lagi er það breyting á umgjörð ríkisfjármála þannig að mögulegt sé að refsa þjóðum sem ekki halda sig innan þeirra viðmiða sem gilda eiga um ríkisfjármál hverrar þjóðar. Í öðru lagi er það síðan frekari skorður við skuldsetningu og í þriðja lagi er það sameiginlegur fjármagnstekjuskattur, sem ætlað er að stuðla að stöðugleika á fjármálamörkuðum.
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira