Arion banki endurreiknar 2000 ólögmæt lán 15. júní 2011 11:51 Arion Banki.
Arion Banki hyggst endurreikna öll þau lán sem kveða á um sömu efnisatriði og Hæstiréttur hefur í nýlegum dómum sínum talið ólögmæt. Um tvö þúsund lán er að ræða samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Arion banki stefnir að því að ljúka endurútreikningi í október en niðurstaðan verður kynnt lánþegum eins fljótt og auðið er. Fram að þeim tíma býður Arion banki viðskiptavinum sínum að greiða áfram af umræddum lánum með óbreyttum hætti eða að greiða 10.000 kr. af hverri milljón af upphaflegum höfuðstól. Samkvæmt dómum Hæstaréttar virðast lán með svokölluðu „jafnvirðisorðalagi“, þar sem útgreiðsla láns og greiðsla afborgana sem og vaxta er í íslenskum krónum, vera gengistryggð lán í íslenskum krónum og þar með að hluta til ólögmæt. Hins vegar teljast lán, þar sem fjárhæð hinnar erlendu myntar er tiltekin og útgreiðsla lánsfjárhæðar og greiðsla afborgana og vaxta var gerð í erlendri mynt, vera lán í erlendri mynt og þar með lögmæt erlend lán. Óvissa ríkir um lögmæti annarra lána þar sem orðalag lánasamningsins og framkvæmd lánveitingarinnar er með öðrum hætti. Arion banki mun áfram leitast við að greiða úr málum hlutaðeigandi einstaklinga og fyrirtækja. Um er að ræða á bilinu tvö til þrjú hundruð lán. Arion banki mun beita sér fyrir því að eyða óvissu varðandi lögmæti þeirra lána og leggja sitt af mörkum til að hraða málum í gegnum dómskerfið eins og frekast er unnt. Starfsmenn Arion banka munu á næstunni setja sig í samband við forsvarsmenn þeirra fyrirtækja og þá einstaklinga sem kost eiga á endurútreikningi lána sinna.
Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira