Viðskipti innlent

Ársskýrsla Skýrr í þrívídd

Ný stjórn Skýrr ehf. var kjörin á aðalfundi félagsins hinn 15. júní 2011. Aðalmenn eru Anna Rún Ingvarsdóttir, Einar Páll Tamimi, Gísli Hjálmtýsson, Þorsteinn G. Gunnarsson og Þór Hauksson. Varamenn eru Erna Eiríksdóttir og Finnbogi Jónsson. Þorsteinn er formaður stjórnar.
Ný stjórn Skýrr ehf. var kjörin á aðalfundi félagsins hinn 15. júní 2011. Aðalmenn eru Anna Rún Ingvarsdóttir, Einar Páll Tamimi, Gísli Hjálmtýsson, Þorsteinn G. Gunnarsson og Þór Hauksson. Varamenn eru Erna Eiríksdóttir og Finnbogi Jónsson. Þorsteinn er formaður stjórnar.
Velta fyrirtækjanna sem mynda samstæðu Skýrr ehf. var liðlega 22 milljarðar króna á árinu 2010. Í afkomutilkynningu frá samstæðunni segir að EBITDA framlegð af reglubundnum rekstri þessara félaga hafi verið 790 milljónir króna og afkoma eftir skatta var um 390 milljónir króna. Skýrr gefur nú út ársskýrslu eftir nokkurt hlé og var bryddað upp á því nýmæli að hafa skýrsluna í þrívídd. Skýrsluna má nálgast á skrifstofu Skýrr ásamt þrívíddargleraugum en einnig má finna hana hér.

„Eigið fé í árslok 2010 nam 3.343 milljónum króna. Áætlun fyrir árið 2011 gerir ráð fyrir veltu upp á 23-24 milljarða króna og að EBITDA framlegð verði um 1,4 milljarður króna,“ segir ennfremur.

Í samanburði áranna 2009 og 2010 er um að ræða rekstur Skýrr, EJS, Kögunar, Eskils, Landsteina-Strengs, HugarAx, Kerfi AB og Hands AS - og móðurfélagsins, Teymis. Þessi félög voru sameinuð undir nafni Skýrr á árunum 2009-2011.

„Talsverð uppsveifla var í afkomu Skýrr-samstæðunnar milli áranna 2009 og 2010. Tekjur ársins 2010 voru 22.129 milljónir króna, en voru 21.477 milljónir 2009. EBITDA framlegð fyrir árið 2010 var 790 milljónir króna, en var 181 milljón árið 2009. Afkoma samstæðunnar var jákvæð um 389 milljónir króna árið 2010, en var hins vegar neikvæð um 362 milljónir árið 2009. Þetta er ágætur viðsnúningur, við erum stolt af þessum rekstrarárangri og útlitið fyrir 2011 er gott," segir Þorsteinn G. Gunnarsson, stjórnarformaður Skýrr.

Ársskýrslu Skýrr er að finna hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×