Hinn sanni jólaandi og jógaiðkun Guðrún Darshan skrifar 20. desember 2011 06:00 Jólin nálgast óðum. Mér finnst ég stundum vera í kapphlaupi við tímann fyrir jólin. En þar sem ég er svo rík að búa yfir daglegri hugleiðsluiðkun, þá staldra ég við á hverjum morgni og anda að mér jólailminum innra með mér. Og þrátt fyrir að dagurinn sé stundum tóm hlaup og mikið að gera þá er oftast einhver hluti af mér sem man eftir innra rými sem er mun stærra en stærsta Bónusverslun eða umferðaráin sem lötrast eftir Miklubrautinni. Það er þrátt fyrir allt mjög nærandi. Ég bý líka við þau forréttindi mitt í jólaamstrinu að búa með litlum anga sem gefur mér innsýn inn í töfraveröld jólanna með opnum huga og gleði yfir litlum hlutum. Eins og púslinu sem hann fær á hverjum morgni í jóladagatalinu sem við keyptum í Ikea. Og hann minnir mig á þennan hluta í mér sem kunni að njóta þess sem við lærum síðar að líta á sem sjálfsagðan hlut. Og sem kunni að gleðjast yfir litlu. Jólin eru hátíð barnanna og barnsins sem býr innra með okkur öllum. Og við fullorðna fólkið sem eigum það til að gleyma töfrunum sem búa í núinu getum eftir sem áður rifjað það upp í gegnum augu barnanna okkar – ef við gefum okkur tíma til þess. Á jólunum höldum við hátíð ljóssins og fögnum því að sólin tekur að rísa hærra og hærra með hverjum degi úr hyldýpi myrkursins. Ljósið fæðist enn á ný og sigrar myrkrið. Eftir það tekur daginn að lengja hröðum og öruggum skrefum. Um leið og fæðing Jesú er tákn fyrir þessa fæðingu ljóssins á nýju ári þá táknar hún líka fæðingu okkar eigin vitundar. Fæðingu ljóssins sem við geymum innra með okkur. Stundum nefnt Kristsvitund. Jógaiðkun hefur þann tilgang æðstan að vekja þessa meðvitund og kveikja þannig á ljósinu innra með okkur. Jóga þýðir sameining – samruni huga, líkama og sálar. Í gegnum jógaiðkun og hugleiðslu lærum við að upplifa óendanleikann innra með okkur sjálfum. Ef við leyfum huganum reglulega að upplifa óendanlegan sjóndeildarhring þá er auðveldara að sjá stóru myndina í öllum samskiptum og lífið verður einfaldara. Við búum flest við mikinn hraða og álag. Við slíkar aðstæður er nauðsynlegt að kunna að hlaða batteríin og rækta með sér leiðir til að styrkja allar hliðar þess að vera manneskja. Það er ekki nóg að stunda líkamsrækt og byggja upp vöðvamassa ef við erum síðan í ójafnvægi og eigum erfitt með að höndla daglegt líf. Kundalini jóga er ævagamalt form af jóga sem hefur notið sívaxandi vinsælda um allan heim. Þetta jógaform er aðeins nýkynnt hér á landi en hefur nú þegar öðlast stóran aðdáendahóp. Kundalini jóga byggir á mjög markvissri tækni sem hjálpar okkur að standa sterk í gegnum álag og komast í snertingu við kyrrðina innra með okkur á fljótvirkan hátt. Með því að iðka Kundalini jóga fáum við tæki til þess að koma jafnvægi á innkirtlastarfsemina, styrkja taugarnar, auka lungnaþol og hreinsa blóðið. Við lærum að öðlast jákvæða, sjálfseflandi hugsun og byggja með okkur innri styrk svo við getum náð árangri í lífinu hvort sem er í samskiptum eða verkefnum hversdagsins. Ef við nýtum okkur þau verkfæri sem jóga getur fært okkur þá eigum við auðveldara með að tengja við það sem skiptir máli og njóta þess að vera með fjölskyldunni okkar hvort sem er um jól eða páska – eða á venjulegum mánudegi. Þegar við skoðum jólin í þessu ljósi, þá verður það kannski skýrara fyrir okkur hvernig jólahátíðin getur dregið fram það besta í okkur. Kristur gaf okkur fyrirmynd til að lifa eftir – ekki til að við tilbæðum hann, heldur til að sýna okkur hvað við getum verið ef við gerum okkar besta. Ef við kunnum leiðir til að tengja við þennan hluta okkur sjálf getum við glatt okkar nánustu og lýst upp okkar eigin meðvitund. Við getum kannski byrjað á að leggja aðeins minni áherslu á að gefa efnislegar gjafir og meiri áherslu á að vekja okkar innri mann. Við getum um jólin hugsað um að gefa gjafir eins og gagnkvæman skilning, fyrirgefningu og umburðarlyndi. Í stað þess að hlaupa milli búða gætum við þjappað saman orkunni okkar og leitað djúpt innra með okkur eftir innri friði og ljósi Kristsvitundar okkar. Það sem endurspeglast í þessum gjöfum er fullkomin gjöf til fjölskyldu, vina og samfélagsins. Þá komumst við kannski í snertingu við hina sönnu jólagleði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun