Fleiri gætu fengið bakreikning 20. desember 2011 09:00 Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fengu fyrri eigendur Húsasmiðjunnar bakreikning frá skattinum vegna skuldsettrar yfirtöku á fyrirtækinu. Samkvæmt yfirlýstri afstöðu skattayfirvalda má ráða að líklegt sé að fleiri fyrirtæki eigi von á slíkum reikningi. Fréttablaðið/Anton
Afstaða skattayfirvalda varðandi vexti á lánum vegna skuldsettra yfirtaka á fyrirtækjum er sú að þeir séu ekki frádráttarbærir frá tekjum fyrirtækja, þar sem ekki séu uppfyllt grundvallarskilyrði fyrir frádráttarbærni. Þetta segir í fréttatilkynningu frá embætti Ríkisskattstjóra frá desember 2009. Eins og kom fram í frétt blaðsins í gær herma heimildir að fyrri eigendur Húsasmiðjunnar hafi fengið endurálagningu skatta af þessum sökum. Mun upphæðin hafa numið um hálfum milljarði króna. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri sagðist ekki geta tjáð sig um málið í samtali við Fréttablaðið. Í ljósi þess sem tekið er fram í fyrrnefndri fréttatilkynningu má hins vegar áætla að fleiri félög sem beitt hafa skuldsettri yfirtöku hafi fengið eða muni fá tilkynningu um endurálagningu. Þar sem þess konar gjörningar voru algengir fyrir bankahrun gæti verið um verulegar fjárhæðir að ræða. Lög um tekjuskatt heimila endurákvörðun skatta vegna tekna og eigna síðustu sex ára sem næst eru á undan því ári þegar endurákvörðun fer fram. Samkvæmt því geta skattayfirvöld krafist endurálagningar vegna áranna 2005 til 2010, sé tilkynning send út áður en þetta ár er liðið.- þj
Mest lesið Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Viðskipti innlent Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Viðskipti erlent Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Sjá meira