Viðskipti innlent

Ingvar Helgason og B&L í söluferli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið falið að annast mögulega sölu á 100% hlut á móðurfélagi Ingvars Helgasonar ehf. og Bifreiða og landbúnaðarvéla ehf.  Fjárhagslegri endurskipulagningu félaganna lauk fyrr á þessu ári þegar nýir hluthafar komu að þeim.

Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti eða búa yfir fullnægjandi þekkingu og reynslu og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 500 milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×