Skilanefnd Kaupþings næst stærst í Circle Oil á eftir líbíska ríkinu Þorbjörn Þórðarson skrifar 31. ágúst 2011 18:24
Skilanefnd Kaupþings er næst stærsti hluthafinn í olíufyrirtækinu Circle Oil með rúmlega níu prósenta hlut á eftir fjárfestingarsjóði Líbíska ríkisins, en Kaupþing fjárfesti með Líbíumönnum í sjóðnum á sínum tíma. Í byrjun september 2008, rétt fyrir bankahrun, keypti Kaupþing 15,6 prósenta hlut í olíufyrirtækinu Circle Oil, sem er í grunninn írskt fyrirtæki. Kaupþing greiddi tíu milljónir punda fyrir hlutinn, jafnvirði um 1,8 milljarða króna. Samtímis keypti fjárfestingarsjóðurinn Libya Oil Holdings, sem er í eigu opinbers fjárfestingarsjóðs Líbíu (LIA, Libyan Investment Authority) tæplega 30 prósenta hlut. Í tilkynningu frá Circle Oil á sínum tíma kom fram að féð átti að nota til að fjármagna olíu- og gasleit í Marrokkó, Túnis og Egyptalandi. Ekki verður betur séð en að þessar framkvæmdir séu komnar á fullt, miðað við upplýsingar úr ársreikningi og á vefsíðu félagsins. Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings sagði í samtali við fréttastofu í dag að Kaupþing héldi enn á eignarhlut í Circle Oil og ekki hefðu átt sér stað þreifingar um sölu á hlutnum. Kaupþing á ekki mann í stjórn fyrirtækisins en að sögn Steinars kemur bankinn mjög lítið að félaginu sem slíku. Samkvæmt ársreikningi félagsins yrir árið 2010 er hlutur Kaupþings í dag 9,34 prósent, og er bankinn næststærsti hluthafinn með rúmlega 52 milljónir huta á eftir líbíska sjóðnum sem er með 100 milljónir hluta og 17,75 prósenta hlut. Hlutabréfaeign líbíska sjóðsins í Circle Oil var fryst í mars síðastliðnum, í kjölfar óstöðugleika í klandinu samkvæmt upplýsingum úr ársreikningnum, sem birtur var á vormánuðum. Virði eigin fjár samkvæmt ársreikningnum er rúmlega 138 milljónir dollara, sem þýðir 12,8 milljóna dollara verðmæti hlutar Kaupþings eða jafnvirði 1,4 milljarða króna. Miðað við gengi bréfa í félaginu í Kauphöllinni í Lundúnum um miðjan dag í dag er verðmæti hlutarins töluvert hærra, eða 2,2 milljarðar króna, en bréfin voru að seljast á 23 sent á hlutinn. Circle Oil skilaði rúmlega tíu milljóna dollara hagnaði á síðasta ári, jafnvirði 1,1 milljarðs króna. Þó fyrirtækið gangi þokkalega í dag verðu ekki annað sagt en að eigendahópurinn sé sérstakur því stærsti hluthafinn er sjóður lands í miðju borgarastríði og næststærsti hluthafinn gjaldþrota banki á Íslandi.
Mest lesið Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira