Jólin

Siggakökur - Gömul og góð uppskrift frá 1947

Áslaug Lilja, amma Áslaug og Sigurjón Kári smakka á hinum ljúffengu smákökum sem kenndar eru við Sigga.
Áslaug Lilja, amma Áslaug og Sigurjón Kári smakka á hinum ljúffengu smákökum sem kenndar eru við Sigga. Fréttablaðið/Stefán
Áslaug Þorgeirsdóttir matreiðslukennari hefur bakað Siggakökur fyrir jólin í fjöldamörg ár. Uppskriftin er úr Nýju matreiðslubókinni frá 1947 eftir Halldóru Eggertsdóttur og Sólveigu Benediktsdóttur. Þetta árið fékk Áslaug dygga hjálp frá barnabörnunum.

Siggakökurnar eru fastur liður í jólahaldi Áslaugar enda renna þær ljúflega niður. Hún bendir á að kökurnar breytist í prýðis súkkulaðibitakökur sé hnetunum sleppt og súkkulaðimagnið aukið.



Siggakökur

½ bolli (ca 110g) smjörlíki

6 msk. (ca 50 g) strásykur

6 msk. (ca 60 g) púðursykur

1 egg

11/8 bolli hveiti

½ tsk. natron

1/8 tsk. salt

Nokkrir dropar heitt vatn

½ bolli saxaðar hnetur eða möndlur.

½ bolli súkkulaðimolar (smátt skornir)

½ tsk. vanilla

Búið til hrært deig, blandið hnetunum, súkkulaðinu og vanillunni í síðast. Mótið með teskeið á plötu og bakið við 200 í 7-10 mín.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×