Jólin

Heitt súkkulaði

Uppskriftin er fyrir tvo.
Uppskriftin er fyrir tvo.

Þeir sem á annað borð velta kaffi eitthvað fyrir sér vita að kaffi er ekki það sama og kaffi. Tinna Jóhannsdóttir í Kaffifélaginu lærði sína kaffilist af Ítölum, en ítalska kaffigerðarhefðin leggur mikið upp úr nákvæmni.

Hér gefur hún upskrift að hinum fullkomna súkkulaðibolla sem gott er að dreypa á á aðventunni.

Tinna Jóhannsdóttir og Ben Stanley James Cockerill, kaffibarþjónn á Kaffifélaginu.

Ég nota tvenns konar súkkulaði þegar ég útbý heitt súkkulaði. Af gömlum vana nota ég Siríus, en aðrar tegundir eru eflaust ágætar líka.

70% súkkulaðið gefur aukakraft og dýpt sem mér finnst ekki nást ef notað er eingöngu Konsúm eða annað sambærilegt.

300 ml nýmjólk

10-12 bitar Siríus Konsúm

5-6 bitar Síríus 70%


Súkkulaðið er borið fram með þeyttum rjóma.

Þegar ég geri fáa bolla finnst mér best að þeyta mjólkina og súkkulaðið saman með cappuccino-stútnum á espresso-vélinni minni því þá verður drykkurinn léttari.

Annars nota ég súkkulaðipottinn hennar ömmu sem ég fékk fyrirfram í arf.

Borið fram með þeyttum rjóma og skreytt með kakódufti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×