Jólin

Frumleg jólakort og gamaldags föndur

Kjartan Jónsson og sonur hans Anton Hugi Kjartansson standa að jola.is.
Kjartan Jónsson og sonur hans Anton Hugi Kjartansson standa að jola.is. mynd/anton
Við erum stolt af því að bjóða upp á ódýrustu sérprentuðu jólakortin samkvæmt neytendakönnun dr. Gunna í Fréttatímanum í fyrra. Í vefverslun okkar á slóðinni jola.is eru falleg jólakort í miklu úrvali en við bjóðum upp á 22 mismunandi útlit af kortum og þegar fólk hefur valið sér útlit á kortunum setur það ljósmyndina sína við,“ segir Kjartan Jónsson, eigandi fyrirtækisins.

„Þetta er mjög auðvelt ferli og fólk getur síðan haft textann eftir eigin höfði og pantað umslög það ef vill. Þetta er eins öruggt og hægt er því fólk fær PDF próförk 1-3 klukkutímum eftir að það hefur pantað og það er ekki fyrr en sú próförk hefur verið samþykkt sem kortin eru prentuð. Þá getur fólk bæði fengið kortin send eða sótt þau í Hrafnshöfða 13 í Mosfellsbæ þar til í byrjun desember en þá verður afgreiðsla kortanna flutt í Holtagarða eins og gert var í fyrra.“

En það er fleira gott í pokanum hjá jola.is ,,Við erum með mjög vinsælt eldhúsdagatal sem er með ávöxtum og kryddjurtum og dálitlum texta en það þykir mjög fallegt og eldhúsprýði. Þá má ekki gleyma heimaföndri Halldóru,“ segir Kjartan og getur þess að það sé einnig á vefsíðunni.

„Kona að nafni Halldóra Einarsdóttir var mikil föndurkona en hún er nú látin. Dóttir hennar, Margrét hefur haldið nafni hennar og föndursins á lofti. Um er að ræða viðarhluta sem sagaðir eru til svo þeir eru tilbúnir undir málningu og límingu. Þetta er mjög skemmtilegt jólaföndur sem rekja má til sjötta áratugarins og Halldóra hannaði með skýrum leiðbeiningum.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×