Ríkissaksóknari Gerður Berndsen skrifar 25. nóvember 2011 06:00 Ég hélt að rannsóknarlögreglan rannsakaði morðmál hér á landi en það er víst ekki þannig. Hún safnar upplýsingum, rannsóknargögnum og sönnunargögnum saman og kemur fyrir í möppu, lögregluskýrslum, sem ríkissaksóknara eru síðan afhentar. Þá tekur saksóknari við sem er aðeins lögfræðimenntaður og „rannsakar” málið og ákveður fyrir hvað skuli ákært. Hann hefur hvorki aðstöðu né færni til þess. Þetta fyrirkomulag færir ríkissaksóknara gífurleg völd. Hann er ríki í ríkinu. Getur gefið út ákæru sem ekki er hægt að áfrýja og þarf hvorki að svara til eins né neins. Eftir að dómur fellur er ekki hægt að fá endurupptöku máls nema ný gögn komi fram, lög 2008. Ríkissaksóknari er tryggður í bak og fyrir. Brotamaður getur kært til Hæstaréttar ef hann telur að sönnunargögn hafi verið rangt metin… Það er ekki hægt í morðmáli. Dóttir mín varð fyrir hrottalegri nauðgun og tekin af lífi af fullum ásetningi og miskunnarleysi að Engihjalla árið 2000: 1. „Afli beitt til að brjóta sylgju á gallasmekkbuxum áður en þær voru dregnar niður fyrir hné (tæknid.).“– Við það féll hún í gólfið á stigaganginum. 2. „Marblettur á báðum olnbogum aftanvert (réttarl.).“– Sem hún fékk við fallið. 3. „Sjáanleg óhreinindi á vinstra hné og hægra læri síðbuxna Á (tæknid.)“ – Hún sparkaði í hann áður en hann tætti nærbuxurnar utan af henni liggjandi. 4. „Sjáanleg óhreinindi á bakhlið nærbuxna Áslaugar Perlu tættar í sundur á báðum hliðum með átaki (tæknid.). Þau komu er hún sparkaði og hann tætti þær. 5. „1x4 sm áverki á ytri kynfærum bendir til kynferðislegs ofbeldis (réttarl.)“ Sem hún fékk er hann tróð lúkunni á milli læra hennar. Smekkbuxurnar voru nefnilega upp að hnjám. 6. „Eingöngu DNA-snið af lim hans (niðurst. frá Noregi).“ Kynörvun nauðgara er kúgunin og lítilsvirðingin. – Hún barðist af svo miklu offorsi að hann hélt honum ekki inni. Þá náði hann ekki að fullkomna glæpinn; fékk ekki fullnægingu. 7. „2,5-3 sm marblettur á enni (réttarl.).“– Sem varð að risastórri kúlu. – Hann missti alla stjórn og kýldi hana af afli í ennið. Hún missti meðvitund. 8. „Hún skildi eftir um 12 áverka á honum, suma blóðuga og einnig á fatnaði hans (í skýrslu).“ 9. Íbúi 9 b vaknaði um kl. 9.10. Heyrði strák öskra eitthvað, stutt setning. Heyrði hvorki sagt neitt né öskrað á móti. Vissi ekki að kom frá 8. 9. eða 10. hæð. – Hún rankaði við sér í fangi morðingjans við svalahandriðið og rak upp óp… 10. Engin tímasetning tekin saman. Ríkissaksóknari sagði í Hæstarétti að dóttir mín hefði verið að hámarki 10 mínútur inni í blokkinni, en þá voru upplýsingarnar gagnslausar. Ég tók saman tímatöflu. Dóttir mín var 5-7 mínútur á 10. hæð. 11. Vettvangsskýrsla ekki lesin. Svalir hreinar, einnig veggur svalahandriðs, engin fingraför, engin ummerki eftir dóttur mína. Ekki einu sinni eitt hár. Maður missir um 100 á dag. Hún steig aldrei á svalirnar. 12. Í dómnum stendur „hún var grátt leikin af ákærða“. Það hefði tekið hana tíma að komast á fætur. Hefði hún sleppt að girða upp um sig sem er ósjálfráð hreyfing til að lítillækka sig? Ef hún hefði elt hann hefði hún þurft að styðja sig við til að halda jafnvægi og fingraför hennar alls staðar. Buxurnar sigið niður undir skóna og hún flækst í axlaböndunum og smekknum og dottið. 13. Hvaða erindi gat hún átt við hann? Hvar var veskið hennar? Hvers vegna beið hann á svölunum? 14. Þegar dóttir mín fannst voru gallasmekkbuxurnar upp að hnjám nákvæmlega eins og þegar hann felldi hana. Á stigapalli, til vinstri við svalir lá veski dóttur minnar, innarlega til hægri. Þar rétt hjá fótspor af skóm morðingjans. Hver kom veskinu þar fyrir? Þessar upplýsingar koma hvergi fram. Saksóknari hefur þann rétt að rannsóknarlögreglan leggi ákveðnar spurningar fyrir ákærða. Það gerði hann ekki þrátt fyrir að rík ástæða væri til þess og yfirheyrslur í skötu líki. 15. Þegar hann var hirtur af lögreglunni fundust nærbuxur hennar í rassvasa hans. 16. Til að mögulegt sé að ýta mannveru yfir 120 sm handrið þá þarf massamiðja hennar að vera yfir 120 sm og hæð hennar þá yfir 2 metrar. „Massamiðja Áslaugar Perlu var 100 sm“ (Þ.V. eðlisfr.). Hæð hennar 169,5. 17. Strax taldar allar líkur á að um hrottalega nauðgun og morð væri að ræða, en ekki gefin út ákæra fyrir nauðgun. Ekki skjalfest rök fyrir þeirri ákvörðun. 18. Hún var sjúklega lofthrædd. 19.Þegar hún kom af Vogi sagði hún við mig að hún myndi aldrei nokkurn tíma láta nokkurn kúga sig aftur á ævinni. – Hún féll í einn sólarhring. Hringdi í Vog, þá var allt uppfullt. Hún átti pláss næsta mánudag. Þaðan inn á Vík… Hér að ofan eru 15-16 sönnunargögn. Fæst þeirra eru lesin. Önnur gróflega mistúlkuð. Tilgangur laganna frá 2008 er eingöngu sá að veita embættismönnum ríkissaksóknara vernd fyrir brot í starfi vegna vanhæfi, að yfirlögðu ráði eða öðrum orsökum. Málið er nú hjá umboðsmanni Alþingis þar sem ég ákæri réttarkerfið fyrir brot á lögum og kröfu um endurupptöku málsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun