Sprenging á laxveiðimarkaðnum 19. nóvember 2011 17:30 Veitt við foss Síðasta sumar veiddist meira á hverja stöng í Elliðaánum en Laxá á Ásum. Stangardagurinn á besta tíma í Laxá á Ásum kostar um 470 þúsund krónur en 35 þúsund í Elliðaánum. Myndin er tekin í Elliðaánum. Fréttablaðið/GVA
Há tilboð í veiðirétt Þverár og Kjarrár í Borgarfirði og Laxár á Ásum hafa vakið mikla athygli á meðal veiðimanna. Heimildarmenn Fréttablaðsins, sem þekkja mjög vel til í veiðiheiminum, hafa gengið svo langt að segja að búið sé að varpa sprengju inn á markaðinn. Verði þróunin í takt við útboðin tvö geti afleiðingin orðið sú að veiðileyfi muni hækka upp úr öllu valdi. Aðeins ríkir útlendingar og örfáir Íslendingar muni ráða við að kaupa sér leyfi í góðum laxveiðiám á besta tíma. Risatilboð í Þverá og KjarráÞegar tilboð í Þverá og Kjarrá voru opnuð í byrjun mánaðarins kom í ljós að óstofnað félag í eigu Ingólfs Ásgeirssonar, Halldórs Stefánssonar og Davíðs Mássonar bauð best. Hljóðaði tilboðið upp á 111,7 milljónir króna. Næsthæsta tilboðið átti Lax-á sem oft er kennt við veiðimanninn Árna Baldursson. Lax-á bauð 111,2 milljónir í ána. Önnur tilboð voru töluvert lægri og flest í kringum 90 milljónir. Stangaveiðifélag Reykjavíkur (SVFR) bauð til dæmis ríflega 88 milljónir í ána. Þar sem mjög litlu munaði á efstu tilboðunum tveimur hefur töluverð vinna farið í að meta tilboðin því eins og gefur að skilja eru oft ýmsir fyrirvarar í tilboðum sem þessum. Þótt enn sé ekki búið að ganga formlega frá samningum herma heimildir Fréttablaðsins að samið verði við hið óstofnaða félag í eigu þremenninganna. Neitar að tjá sigIngólfur Ásgeirsson, einn þremenninganna sem standa á bak við hæsta tilboðið, vildi ekkert ræða málið þegar Fréttablaðið hafði samband. „Ég vil bara ekki láta hafa neitt eftir mér um þetta mál – ég vil ekki ræða þetta í fjölmiðlum,“ sagði Ingólfur. „Við erum með hæsta boð og það er í ákveðnum farvegi og ég vil ekki tjá mig neitt.“ Þverá og Kjarrá voru boðnar út til fimm ára og tekur nýr leigutaki við ánum árið 2013. Fyrir fimm ára samning mun nýr leigutaki því borga um 560 milljónir. Ofan á þetta leggst ýmis kostnaður. Nýr leigutaki á eftir að semja við bændur um netaleigu og laga vegi í kringum árnar. Heimildir blaðsins herma að vegna þessa sé óhætt að bæta um 15 til 20 milljónum á ári við leiguverðið. Þar með er leigan á ánum í raun komin í um 130 milljónir króna á ári eða 650 milljónir á samningstímanum. Þá er ekki öll sagan sögð því samningurinn er verðtryggður og bundinn vísitölu neysluverðs. Verðtryggingin tók gildi um leið og útboðið var opnað, hinn 1. nóvember síðastliðinn. Úr 200 þúsund í 300?Félagið Sporður hefur verið með Þverá og Kjarrá á leigu undanfarin ár og eftir því sem Fréttablaðið kemst næst greiddi Sporður um 90 milljónir króna fyrir árnar á ári. Inni í þeirri upphæð var greiðsla vegna netaleigu. Það er því ljóst að með öllu mun leigan hækka um 35 til 45 prósent. Enn er óljóst hvaða áhrif nýlegt útboð mun hafa og hvort búast megi við því að aðrar ár fari í útboð á næstunni og leigan á þeim hækki, sem skilar sér að sjálfsögðu í hærra verði á veiðileyfum. Eitt er þó ljóst og það er að veiðileyfi í Þverá og Kjarrá mun hækka verulega. Í sumar kostaði stangardagurinn á besta tíma tæpar 200 þúsund krónur. Heimildir blaðsins herma að til þess að geta selt svokallaða jaðartíma á þokkalega skynsamlegu verði muni nýir leigutakar þurfa að selja besta tímann á ríflega 300 þúsund krónur, sem myndi þýða 50 prósentahækkun. Það er einungis á færi örfárra Íslendinga að borga slíka upphæð enda er það ekkert leyndarmál að helst er stílað á vel efnaða útlendinga í markaðssetningu jafn dýrra áa. Til samanburðar má geta þess að dýrustu dagarnir í Norðurá kostuðu 160-170 þúsund síðasta sumar og eftir því sem Fréttablaðið kemst næst verður verðið svipað næsta sumar – að minnsta kosti er ekki búist við mikilli hækkun. Mikil gengisáhættaAllt frá bankahruni hefur gengið vel að fá erlenda veiðimenn til landsins. Vegna falls krónunnar hefur verið hagstætt fyrir útlendinga að veiða hér. Veiðileyfasölum hefur sem sagt gengið ágætlega að velta hækkunum á veiðileyfum yfir á útlendinga, sem kaupa gjarnan dýrustu leyfin. Hins vegar eru blikur á lofti núna. Efnahagsástandið í Evrópu er tvísýnt og því ljóst að veiðileyfasalar verða að taka gengisáhættuna inn í reikninginn. „Það er hugsanlega að skella á fjármálalegt ofviðri í Evrópu,“ segir Bjarni Júlíusson, formaður SVFR. „Hvað gerist þá? Hvað gerist ef krónan styrkist verulega? Mér finnst menn vera að taka mikla áhættu. Vissulega voru hæstu tilboðin í Þverá og Kjarrá mjög há. Ég myndi þó fara varlega í að segja að sprengju hafi verið kastað inn á markaðinn. Satt að segja átta ég mig ekki alveg á hugsanlegum afleiðingum þessa, ég átta mig ekki alveg á því hvaða áhrif þetta mun hafa á markaðinn. Þegar svo er, er langbest að anda með nefinu og sjá hvað gerist.“ Bjarni segir að ólíkt því sem margir haldi sé fremur óalgengt að laxveiðiár fari í útboð. Í fljótu bragði muni hann aðeins eftir þremur ám sem hafi farið í útboð á þessu ári, Laxá á Ásum, Þverá og Kjarrá og Dunká. Stangaveiðifélagið var með hæsta tilboðið í Dunká, sem er tveggja stanga á skammt austan við Stykkishólm. Fer Norðurá í útboð?Samningur SVFR við veiðiréttarhafa Norðurár rennur út árið 2013. Hugsanlegt er því að þessi perla félagsins fari í útboð á næsta ári. Bjarni segir að SVFR hafi verið með samning um Norðurá síðan 1946 og á þeim tíma hafi hún aðeins einu sinni farið í útboð. „Ég veit ekki hvort hún fer í útboð á næsta ári. Ég vona auðvitað að við náum að semja við Norðurárbændur um áframhaldandi samstarf eins og við höfum gert um áratugaskeið,“ segir Bjarni. „Punkturinn er hins vegar þessi að ef við hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur ætlum að vera með íslenskar laxveiðiár á leigu þá verðum við að borga markaðsverð fyrir alla vöru sem við kaupum, hvert svo sem markaðsverðið er. Ef markaðsverðið fyrir Norðurá er 120 milljónir, eða 100 milljónir eða 90 þá verðum við að reiða það fram ef við ætlum að taka þátt á þessum markaði á annað borð. Ég viðurkenni fúslega að mér finnst þetta háar tölur en við skulum sjá hvað gerist.“ Stangaveiðifélagið framlengdi í vikunni tvo leigusamninga við Veiðifélag Laxdæla. Annars vegar var samið um Laxá í Dölum og hins vegar Fáskrúð í Dölum. Veiðin í báðum þessum ám var fremur slök í sumar samanborið við í fyrra. Laxá í Dölum fór til að mynda úr tæplega 1.800 löxum niður í tæplega 600. Heimildir blaðsins herma að leigan á Laxá í Dölum hafi af þessum sökum lækkað miðað við fyrri samning. „Við fundum ásættanlega tölu sem báðir aðilar gátu sætt sig við og það var mjög ánægjulegt,“ segir Bjarni. Hvað gerist næst?Jón Þór Júlíusson, eigandi Hreggnasa, sem meðal annars er með Grímsá og Laxá í Kjós á leigu, segir hækkun leigunnar í Þverá og Kjarrá þá mestu sem hann hafi séð. „Það sem vekur líka athygli er hversu gríðarlega mikill munur er á tilboðunum.“ Segir Jón Þór. „Síðan er auðvitað spurningin hvað gerist næst. Hættan núna er að aðrir leigusalar fylgi í kjölfarið, að við förum að sjá fleiri útboð á laxveiðiám. Á næstu þremur árum losna samningar í flestum stórum ám því oftast gera menn bara tveggja til fimm ára samninga.“ Jón Þór tekur undir með Bjarna og segir að mesta áhætta leigutaka á Íslandi í dag sé gengisáhættan. „Staðan er mjög fín fyrir útlendinga í augnablikinu. Það getur samt enginn sagt hvar krónan verður stödd eftir nokkra mánuði, hvað þá nokkur ár.“ Laxá á ÁsumNýir leigutakar tóku við Laxá á Ásum í haust eftir útboð. Félagið Salmon Tails, sem er í eigu Íslendinga, mun greiða 28 milljónir á ári í leigu fyrir ána sem er fjórum milljónum meira en félagið Lax-á greiddi fyrir ána. Áin er án efa á meðal þekktustu laxveiðiáa Íslands en í henni er aðeins veitt á tvær stangir. Heimildarmenn Fréttablaðsins eru sammála um að leigan sé há. Hins vegar verði að hafa í huga að Laxá á Ásum sé og hafi alltaf verið svolítið sérstök, til að mynda hafi verðlagningin þar ávallt verið töluvert hærri en annars staðar. Einn heimildarmaður sagði að síðustu ár hefði áin verið „bandvitlaust“ verðlögð því veiðin hefði dalað mikið. Síðasta sumar veiddust til að mynda fleiri laxar á hverja stöng í Elliðaánum en Laxá á Ásum og kostar dagurinn í Elliðaánum á besta tíma um 35 þúsund krónur. Þriggja daga túr á 2,8 milljónirSamkvæmt nýjum verðlista fyrir næsta sumar mun stangardagurinn á tímabilinu 15. júlí til 2. ágúst kosta frá 419 þúsund krónum upp í 469 þúsund. Þriggja daga pakki með tvær stangir frá 21. til 24. ágúst mun því í heildina kosta ríflega 2,8 milljónir króna. Ódýrast er að veiða frá 7. til 11 september en þá kostar stangardagurinn 71 þúsund krónur.
Mest lesið Gátu ekki fært sönnur á fullyrðingar um virkni sveppadropa og dufts Neytendur Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Olíuefni í Bugles sem eiga ekki að vera í snakkinu Neytendur Kvartanir borist vegna aflýstra flugferða Neytendur „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Viðskipti innlent „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Viðskipti innlent Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Baldvin tekinn við sem forstjóri Samherja Lánardrottnar slá af milljarð af vöxtum á ári Birta stendur frammi fyrir 1,5 milljarða tapi á Play Ósátt með samráðsleysi stjórnvalda Atvinnuleysi minnkar lítillega Samkaup segja upp tuttugu og tveimur Vonast til að hefja slátrun árið 2028 Öryggismyndavélar á grenndarstöðvum eigi að sporna við sóðaskap Vilja lækka fasteignaskatta um tvo milljarða: „Við eigum fyrir þessu“ Á von á fleiri fyrirtækjum í hópmálssókn gegn Booking.com Þrjú verkefni fengu styrk úr sjóði FrumkvöðlaAuðar Endurskoða áform um 1,5 milljarða skattahækkun Tekjur meiri af erlendum ferðamönnum og færri starfandi í ferðaþjónustu Flokka úrgang í fyrsta sinn á Norðurálsmótinu Hefur sjálfur séð eyðileggingu af völdum botnvörpuveiða Bjarg íbúðafélag reisir þrjátíu íbúðir í Reykjanesbæ Allir héldu stjörnunni og Óx fékk eina græna til Raquelita Rós ráðin tæknistjóri Um helmingur sérbýla kostar meira en 150 milljónir Sérstaða Íslendinga í máltækni nýtist í nýrri samnorrænni gervigreindarmiðstöð Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Sigrún Ósk ráðin upplýsingafulltrúi Akraneskaupstaðar Selur ísbílinn eftir þrjátíu ár í bransanum Sjá meira
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf