SpKef mun kosta ríkið allt að þrjátíu milljarða króna 17. nóvember 2011 04:00
Ríkið þarf að borga allt að 30 milljarða króna vegna sölu á SpKef til Landsbankans. Lægri mörk samningsins eru að ríkið borgi rúma ellefu milljarða króna. Sérstök úrskurðarnefnd hefur verið sett á laggirnar við að skera úr um eignir SpKef og niðurstaða hennar mun ráða því hver upphæðin verður. Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fékk, eins og aðrir nefndarmenn í efnahags- og viðskiptanefnd, samninga vegna sölunnar á SPKef og Byr í hendur seint í gær. „Ríkið kemur skelfilega út úr þessum gjörningum. Hér eru um að ræða gríðarleg útgjöld fyrir ríkissjóð: 11,1 til 30 milljarða króna.“ Tryggvi metur það svo að ríkið þurfi að borga um 20 milljarða vegna SpKef þegar upp verði staðið. Samningurinn á milli Landsbankans og fjármálaráðuneytisins varðandi SpKef í hnotskurn er þannig að Landsbankinn tekur SpKef yfir. Ríkið borgar mismuninn á eignum bankans og innistæðum með ríkisskuldabréfum til Landsbankans. Það er úrskurðarnefndarinnar að meta hversu há sú upphæð verður. Ríkið metur að því beri að greiða 11,1 milljarð en Landsbankinn metur upphæðina um 30 milljarða. Gert er ráð fyrir tveimur mögulegum leiðum í samningi á milli ríkisins og Íslandsbanka varðandi Byr. Annars vegar að greiddir verði sex milljarðar fyrir bankann og Íslandsbanki fái lausafjárfyrirgreiðslu hjá ríkissjóði gegn tryggingu, sem er ekki tilgreind í samningnum. Hins vegar að greiddir verði níu milljarðar fyrir bankann. Milljarður verði borgaður í reiðufé og átta milljarðar með skuldabréfi til fjögurra ára. Seljandinn, gamli Byr og ríkið, fá möguleika á að kaupa hlut af eignasafni Byr. Tryggvi Þór segir að nefndarmenn hafi ekki fengið að vita hvaða eignir þetta séu. Þingmenn minnihlutans á Alþingi gengu úr þingsal í gær vegna þess að upplýsingar fengust ekki er varða afgreiðslu fjáraukalaga, og voru upplýsingar um eignatilfærslu við sölu á Byr eitt af því sem ekki fékkst uppgefið. Um Byrsamninginn segir Tryggvi það óeðlilegt að ríkið sjái um milljarða lausafjárfyrirgreiðslu inn í bankastofnun, gegn tryggingum sem enginn fær að vita hverjar eru. „Eðlilega leiðin væri að fara í Seðlabankann, með vel skilgreindan samning, og fá lausafjárfyrirgreiðsluna þar. Þessu fylgir áhætta fyrir ríkið, vegna ríkisábyrgðar til dæmis,“ segir Tryggvi. - shá
Mest lesið Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Sjá meira