Fjórðungur orðið fyrir tjóni 17. nóvember 2011 05:00 Stjórnendur fyrirtækja upplýsa sjaldan um tölvuinnbrot þar sem þeir óttast að slíkt geti skaðað orðspor fyrirtækjanna. Fréttablaðið/GVA
TækniFjórðungur stjórnenda íslenskra fyrirtækja sem sóttu nýlega ráðstefnu um tölvuöryggi sagði fyrirtæki sín hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni af völdum tölvuárása á síðustu tólf mánuðum. Alls sögðu 45 prósent fyrirtæki þeirra hafa orðið fyrir einhvers konar tölvuárásum. Þetta kemur fram í Vírnum, fréttabréfi sem ráðgjafafyrirtækið Deloitte gefur út. Hafa ber í huga að könnunin var gerð á ráðstefnu um tölvuöryggismál og því ekki hægt að fullyrða um íslensk fyrirtæki almennt út frá tölunum. Þó benda þær til þess að tölvuárásir séu algengari hér á landi en búast mætti við miðað við þá athygli sem málefnið fær. Fyrirtæki sem verða fyrir tölvuárásum vilja síður að upp komist um árásina. Ástæðan er sú að fréttist af slíkri árás getur það haft áhrif á það traust sem fyrirtækið nýtur, og þar með haft umtalsverð áhrif á fjárhag þess. Í niðurstöðum bandarískrar könnunar sem sagt er frá í Vírnum kemur fram að virði fyrirtækja fellur að jafnaði um 17 til 31 prósent þegar upp hefur komist um tölvuinnbrot. Að jafnaði tekur það eitt ár fyrir fyrirtækin að laga orðspor sitt eftir innbrot. - bj
Mest lesið Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Sjá meira