Gagn - rýni Ásta Jóhannsdóttir skrifar 15. nóvember 2011 06:00 Hinn 10. nóvember síðastliðinn birtist í Fréttablaðinu og á visir.is pistill eftir Gunnar Hersvein þar sem hann fjallar um gagnrýna greiningu okkar á Öðlingsátakinu 2011. Við og Gunnar Hersveinn erum sennilega sammála í langflestum tilfellum þegar kemur að jafnréttismálum. Öllum þykir okkur fjarvera karla í umræðunni um jafnréttismál grafalvarleg og viljum endilega fá fleiri karla með í baráttuna þar sem jafnréttisbarátta er barátta allra, karla og kvenna. Okkur virðist hann þó rangtúlka orð okkar og rannsóknarniðurstöður í nokkrum atriðum og viljum því árétta þau atriði. Fyrst viljum við þó koma á framfæri ábendingu frá einum öðlinganna sem benti á mistök af okkar hálfu. Á bls. 21 í greininni er talað um sameiginlega ábyrgð foreldra á umönnun barna og jafna þátttöku í rekstri heimilis. Við segjum að einungis Sigurður Magnússon hafi í sínum pistli fjallað um þessi mál, en Karvel Aðalsteinn Jónsson gerði það einnig í sínum pistli. Þar var hins vegar áhersla hans fyrst og fremst á rétt foreldra en ekki umönnun. Þess vegna var hans orða ekki getið í þessu samhengi. Gunnar Hersveinn virðist telja að það þurfi mun víðtækari rannsókn og greiningu til að svara rannsóknarspurningum okkar. Við teljum okkur þó hafa svarað rannsóknarspurningunum á fullnægjandi hátt með orðræðu og þemagreiningu á pistlunum. Við takmörkuðum okkur hins vegar við pistlana sjálfa sem voru þær upplýsingar sem aðgengilegar voru. Við höfðum engar forsendur til þess að meta það hvernig fjallað var um innihald pistlanna úti í samfélaginu, hvort umræðan þar væri gagnrýnin eða ekki. Víðtækari rannsókn væri vissulega gagnleg og gæfi dýpri þekkingu. Það dregur hins vegar, að okkar mati, ekki úr gildi rannsóknarinnar. Gunnar Hersveinn telur að draumapistlahöfundar okkar séu „menntaðir femínistar sem skrifa helst um jafnrétti á heimili og ábyrgð á börnum" og að við viljum skammta þeim efnisflokka til að skrifa út frá. Í fyrsta lagi þá nefnum við það að enginn þeirra skilgreini sig sem femínista, en gerum alls ekki kröfu um slíka skilgreiningu. Karlar sem tjá sig um jafnréttismál þurfa hvorki að vera menntaðir né skilgreina sig sem femínista og hvað þá heldur að þeir megi einungis tala um jafnrétti á heimili og ábyrgð á börnum. Athugasemd okkar er við útgangspunkt átaksins, að útgangspunkturinn þurfi að vera persónulegri til þess að koma í veg fyrir bergmál kynjakerfisins. Ástæðan fyrir áherslu okkar á jafnrétti á heimilum og umönnun barna er sú að jafnrétti á persónulega sviðinu er ákveðin forsenda fyrir jafnrétti á opinbera sviðinu. Í öðru lagi, þá fengu öðlingarnir 2011 ákveðna efnisflokka til þess að velja úr þegar þeir voru beðnir um að taka þátt í átakinu. Ekkert slíkt er lagt til af okkur. Gunnar Hersveinn leggur áherslu á mikilvægi þess að fjölga körlum í umræðunni og það hafi Þórdísi Elvu tekist. Þar erum við algjörlega sammála, en það er ekki þar með sagt að þetta átak sé yfir alla gagnrýni hafið. Ekki frekar en rannsókn okkar. Gunnar Hersveinn virðist telja að við séum að hæðast að körlum sem skrifi undir öðlingsnafninu. Það gerum við ekki þó að við veltum því upp í greininni hvort öðlingshugtakið hafi haft áhrif á hvernig karlarnir nálguðust viðfangsefnið. Það má velta því fyrir sér hvort hann sé að vísa í greinina „Tussan" sem birtist á hugras.is sem hann tiltekur sem heimild í pistli sínum. Hún er hins vegar ekki okkar verk. Gunnar Hersveinn undirstrikar að Öðlingurinn 2011 hafi verið „…vitundarvakning sem fólst í því að heyra sjónarhorn nokkurra karla." Hann telur að „…markmiðið hafi einnig verið að kanna hvort karlar sem lesa aldrei neitt um jafnréttismál myndu ef til vill lesa þetta og síðan meira og fleira eftir bæði kynin og taka loks þátt í umræðunni. Ekki er vanþörf á". Frábær hugmynd og góðra gjalda verð. Ef fólk sem er ekki vant að lesa um jafnréttismál les svo pistla um jafnréttismál sem bergmála kynjakerfið og festa það í sessi, t.d. mýtur um að konur séu að sigra heiminn, þá er tilganginum sennilega ekki náð. Fjarvera karla er vandi, um það er ekki deilt hér. Jafnréttisátak þarf hins vegar alltaf að gagn-rýna, rýna til gagns. Rannsóknir hafa sýnt að það sé alls ekki sjálfgefið að jafnréttisátak leiði til aukins jafnréttis. Við hljótum að vera sammála um að jafnréttisátak eigi að stuðla að jafnrétti. Orðræðugreining á pistlunum sýnir að þó nokkrir þeirra bergmála kynjakerfið. Það teljum við ekki líklegt til árangurs. Þaðan sprettur þessi tillaga okkar um að útgangspunktur næsta átaks verði persónulegri: Hver er persónulegur ávinningur minn af kynjajafnrétti? Sú tillaga er þó auðvitað alls ekki yfir gagnrýni hafin. Við vonumst því til að næsta átak, sama hvaða útgangspunktur verður tekinn, verði gagn – rýnt til þess að markmiðum þess verði betur náð. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Tengdar fréttir Að falla í kynjagryfjur eða ekki Fjarvera íslenskra karlmanna á vettvangi jafnréttismála er alvarlegur vandi. Þeir eru velkomnir en mæta ekki og tjá sig sjaldan. Það er líkt og þeim finnist betra að þegja en verða aðhlátursefni. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir lista- og fréttamaður og Fréttablaðið gerðu tilraun til að breyta þessu með Öðlingsátakinu 2011. 10. nóvember 2011 06:00 Mest lesið Falið heimsveldi Al Thani-fjölskyldunnar Finnur Th. Eiríksson Skoðun Þetta þarftu að vita: 12 atriði Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun Samfélag sem týnir sjálfu sér Viðar Halldórsson Skoðun Hið landlæga fúsk Helga Sigrún Harðardóttir Skoðun Fimm ár í feluleik Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun Krónan er akkeri hagkerfisins! Erna Bjarnadóttir Skoðun Óeðlileg völd og áhrif stórra útgerðarfyrirtækja Oddný G. Harðardóttir Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir Skoðun Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza Birgir Finnsson Skoðun Skoðun Skoðun Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Öryggismenning – hjartað í ábyrgri ferðaþjónustu Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Falið heimsveldi Al Thani-fjölskyldunnar Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare skrifar Skoðun Hið landlæga fúsk Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Þetta þarftu að vita: 12 atriði Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Ég frétti af konu Gunnhildur Sveinsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur ESB-sinna leiðréttar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann skrifar Skoðun Akademísk kurteisi á tímum þjóðarmorðs Finnur Ulf Dellsén skrifar Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson skrifar Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Normið á ekki síðasta orðið Katrín Íris Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hinir miklu lýðræðissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar? Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson skrifar Sjá meira
Að falla í kynjagryfjur eða ekki Fjarvera íslenskra karlmanna á vettvangi jafnréttismála er alvarlegur vandi. Þeir eru velkomnir en mæta ekki og tjá sig sjaldan. Það er líkt og þeim finnist betra að þegja en verða aðhlátursefni. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir lista- og fréttamaður og Fréttablaðið gerðu tilraun til að breyta þessu með Öðlingsátakinu 2011. 10. nóvember 2011 06:00
Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun
Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir Skoðun
Skoðun Framtíð íslensks menntakerfis – lærum af Buffalo og leiðandi háskólum heims Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Öryggismenning – hjartað í ábyrgri ferðaþjónustu Ólína Laxdal,Sólveig Nikulásdóttir skrifar
Skoðun Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare skrifar
Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar
Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Við styðjum Ingólf Gíslason og annað starfsfólk í akademískri sniðgöngu Elía Hörpu og Önundarbur,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Íris Ellenberger,Sjöfn Asare Skoðun
Nýsamþykkt aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum – aldrei mikilvægari en nú Halla Þorvaldsdóttir Skoðun