Vaðlaheiðargöng og pólitískt þrek Gunnlaugur Fr. Jóhannsson skrifar 12. nóvember 2011 10:30 Það þurfti pólitískan kjark til þess að rífa Ísland upp úr fátæktinni og byggja nútímaþjóðfélag. Engir arðsemisútreikningar hefðu getað réttlætt heilbrigðisþjónustuna – þar sem ég starfaði lengstum – skólakerfið eða samgöngubæturnar. Allt var þetta byggt á eldmóði og hugsjón, með áræði og bjartsýni. Úrtölumenn voru nægir þá sem nú. Vaðlaheiðargöngin mælast varla sem stórvirki á skala íslenskrar uppbyggingar en gætu vissulega bætt lífskjör okkar hér á Norður- og Austurlandi. Göngin leysa af hólmi hættulegan veg. Fyrst er vegurinn krókóttur, hæðóttur og með fjölmörgum tengingum svo minnir á húsagötu. Sjálft fjallaskarðið lokast síðan auðveldlega á vetrum, sem er meirihluti ársins ef mér leyfist að minna á þá augljósu staðreynd. Þetta er lífshættulegur vegur samkvæmt umferðartölfræðinni. Auk þessa sparast tími, leiðir styttast, ferðamennska fær ný tækifæri og fólk getur farið lengri veg í vinnu. Við Akureyringar höfum borgað vegatoll í mörg ár og ekki kvartað. Nú erum við tilbúin að bæta samgöngur á eigin reikning. Reykjavíkurhælbítarnir leggjast gegn vegtollum, enda óvanir slíku. Vilja þá ekki á sitt svæði. Borgarfulltrúar, þingmenn, ritstjórar og stöku ráðherra reyna að koma í veg fyrir Vaðlaheiðargöng. Nú ríður á að þeir sem til einhvers duga láti verkin tala. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Barnasáttmáli fyrir öll börn Guðný Björk Eydal,Paola Carenas Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Eins skýrt og það verður Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Ójafnvægið sem heimurinn býr við – og skellur á Bakka Erna Bjarnadóttir Skoðun Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Snorri Másson Skoðun Verður það að vera Ísrael? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Þögnin sem skapaði ótta – arfleifð Þórarins í Sameyki Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gríðarlegir hagsmunir í húfi Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Trollveiðar og veiðiráðgjöf Magnús Jónsson Skoðun Hver borgar fyrir ódýrar lóðir? Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Barnasáttmáli fyrir öll börn Guðný Björk Eydal,Paola Carenas skrifar Skoðun Ójafnvægið sem heimurinn býr við – og skellur á Bakka Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bensínstöðvardíll og Birkimelur Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Trollveiðar og veiðiráðgjöf Magnús Jónsson skrifar Skoðun Gríðarlegir hagsmunir í húfi Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Skynsamleg forgangsröðun fjár Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Eins skýrt og það verður Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Að sameinast fjölskyldu sinni Guðrún Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Þögnin sem skapaði ótta – arfleifð Þórarins í Sameyki Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Snorri Másson skrifar Skoðun Eru forvarnir í hættu? Dagbjört Harðardóttir skrifar Skoðun Tveir alþingismenn og Gaza Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Hver borgar fyrir ódýrar lóðir? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Erum við að lengja dauðann en ekki lífið? Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Mikill munur á aðgengi að líknarmeðferð í Evrópu Kristín Lára Ólafsdóttir skrifar Skoðun Sumarið verður nýtt vel til uppbyggingar snjóflóðavarna Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Verður það að vera Ísrael? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Dýravernd - frumbyggjahættir Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Stórstraumsfjara mæld - HMS ráðþrota Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum fordómum ekki umburðarlyndi Snorri Sturluson skrifar Skoðun Landbúnaður á tímamótum – Við þurfum nýja stefnu Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Sjómenn til hamingju! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Leyfum mennskunni að sigra Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Fjölskyldan fyrst Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað er markaðsverð á fiski? Sverrir Haraldsson skrifar Skoðun Tími til kerfisbundinna breytinga í samfélagstúlkun – ákall til stjórnvalda Anna Karen Svövudóttir skrifar Skoðun Fæðing Ísraels - Líkum misþyrmt BIrgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Við eigum allt. Af hverju finnst okkur samt vanta eitthvað? Valentina Klaas skrifar Skoðun Um spretthóp og lestrarkennslu. Hvatning til mennta- og barnamálaráðherra um faglega starfshætti Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Sjá meira
Það þurfti pólitískan kjark til þess að rífa Ísland upp úr fátæktinni og byggja nútímaþjóðfélag. Engir arðsemisútreikningar hefðu getað réttlætt heilbrigðisþjónustuna – þar sem ég starfaði lengstum – skólakerfið eða samgöngubæturnar. Allt var þetta byggt á eldmóði og hugsjón, með áræði og bjartsýni. Úrtölumenn voru nægir þá sem nú. Vaðlaheiðargöngin mælast varla sem stórvirki á skala íslenskrar uppbyggingar en gætu vissulega bætt lífskjör okkar hér á Norður- og Austurlandi. Göngin leysa af hólmi hættulegan veg. Fyrst er vegurinn krókóttur, hæðóttur og með fjölmörgum tengingum svo minnir á húsagötu. Sjálft fjallaskarðið lokast síðan auðveldlega á vetrum, sem er meirihluti ársins ef mér leyfist að minna á þá augljósu staðreynd. Þetta er lífshættulegur vegur samkvæmt umferðartölfræðinni. Auk þessa sparast tími, leiðir styttast, ferðamennska fær ný tækifæri og fólk getur farið lengri veg í vinnu. Við Akureyringar höfum borgað vegatoll í mörg ár og ekki kvartað. Nú erum við tilbúin að bæta samgöngur á eigin reikning. Reykjavíkurhælbítarnir leggjast gegn vegtollum, enda óvanir slíku. Vilja þá ekki á sitt svæði. Borgarfulltrúar, þingmenn, ritstjórar og stöku ráðherra reyna að koma í veg fyrir Vaðlaheiðargöng. Nú ríður á að þeir sem til einhvers duga láti verkin tala.
Skoðun Tími til kerfisbundinna breytinga í samfélagstúlkun – ákall til stjórnvalda Anna Karen Svövudóttir skrifar
Skoðun Um spretthóp og lestrarkennslu. Hvatning til mennta- og barnamálaráðherra um faglega starfshætti Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar