Bræðurnir að tapa eign sinni í Bakkavör 4. nóvember 2011 07:00 Lýður og Ágúst Guðmundssynir stofnuðu Bakkavör Group árið 1986. Þeir eiga nú á hættu á að tapa eign sinni í félaginu.
Framlegð Bakkavarar Group er ekki í takt við það sem nauðasamningur þess gerði ráð fyrir. Kröfuhafar, íslenskir bankar og lífeyrissjóðir, telja litlar sem engar líkur á að skuld við þá verði greidd. Þeir muni því breyta kröfum í hlutafé. Bakkavör Group skilar ekki þeirri framlegð sem nauðsynleg er til að tryggja bræðrunum Ágústi og Lýði Guðmundssonum áframhaldandi yfirráð yfir félaginu. Félagið tapaði um 2,5 milljörðum króna í fyrra og heimildir Fréttablaðsins herma að litlar sem engar líkur séu á að það geti greitt kröfuhöfum sínum þá rúmlega 90 milljarða króna sem nauðasamningur Bakkavarar gerði ráð fyrir að þeir myndu fá greiddar um mitt ár 2014. Þess í stað munu þeir breyta kröfum í hlutafé og taka yfir eign bræðranna í Bakkavör. Stærstir þeirra eru Arion banki, skilanefnd Glitnis, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Gildi lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður verslunarmanna. Bakkavör Group, móðurfélag samstæðunnar, gaf út skuldabréf upp á 300 milljónir punda, 55,2 milljarða króna, fyrir bankahrun. Engar eignir voru þó inni í því félagi þar sem allur rekstur var, og er, girtur af í dótturfélögum. Lánardrottnar rekstrareininga Bakkavarar eiga því veð í öllum eiginlegum eignum hennar. Í mars 2010 var samþykktur nauðasamningur sem gerði ráð fyrir því að kröfuhafarnir ættu að fá allar kröfur sínar greiddar með vöxtum fyrir lok júnímánaðar 2014. Samtals myndi það þýða að Bakkavör þyrfti að greiða kröfuhöfum sínum um 500 milljónir punda, um 92 milljarða króna, á tímabilinu. Samkvæmt endurskipulagningaráætlun Bakkavarar, sem kölluð var „Project Crocodile“, myndu Ágúst og Lýður Guðmundssynir geta eignast allt að 25% hlut í félaginu ef greiðslurnar til kröfuhafa myndu ganga eftir. Þeir fengu auk þess að reka fyrirtækið áfram fram á mitt ár 2014. Lýður er í dag stjórnarformaður Bakkavarar og Ágúst forstjóri. Ef Bakkavör tækist ekki að greiða kröfuhöfunum til baka þá myndu þeir breyta kröfum sínum í hlutafé í Bakkavör og taka yfir allan eignarhlut bræðranna. Bakkavör Group tapaði um 2,5 milljörðum króna í fyrra. Heimildir Fréttablaðsins herma að afkoman sé fjarri því að vera í takt við það sem gert var ráð fyrir í nauðasamningi Bakkavarar. Miklar hækkanir á hrávöru á borð við prótín og mjólkurvörur, sem Bakkavör notar í framleiðslu sína, hafa haft mikil áhrif á framlegð félagsins á sama tíma og gríðarleg samkeppni ríkir í smásölu. Neysla í Bretlandi, stærsta markaði Bakkavarar, hefur auk þess dregist saman. Samkvæmt heimildum blaðsins telja kröfuhafar Bakkavarar litlar sem engar líkur á að skuld þeirra verði greidd, nema þá að litlu leyti. Því muni þeir breyta kröfum sínum í hlutafé þegar þar að kemur. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Viðskipti innlent Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Viðskipti innlent ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Sjá meira