Ferming hvað? Bjarni Gíslason skrifar 1. nóvember 2011 06:00 Það er sjálfsagt misjafnt hvað fólk hugsar um þegar það hugsar um fermingu. Sumir hafa þá skoðun að börnin sem láti ferma sig hugsi bara um gjafirnar og meini eiginlega ekkert með þessu. Ég tel að þetta séu fordómar sem eigi ekki við rök að styðjast. Ég hef bara of mikil samskipti við fermingarbörn og starfsmenn kirkjunnar sem sinna fermingarfræðslu til að taka mark á slíkri fullyrðingu. Allt annar sannleikur blasir nefnilega við mér. Þau vita vel um hvað þetta snýst, hafa skoðanir á lífinu, trúnni og þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera maður. Um þetta eru þau að fjalla allan veturinn í fermingarfræðslunni. Ferming hvað? Svar Hjálparstarfs kirkjunnar væri: Stórkostleg ábyrgð á systur og bróður í Afríku, ekki bara í orði heldur í verki. Þú hváir kannski enn. Jú, um 3.000 fermingarbörn standa fyrir söfnun til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í nóvember á hverju ári. Þau ganga í hús með merkta bauka Hjálparstarfs kirkjunnar og setja þrýsting á okkur hin að leggja okkar af mörkum af því að þeim er ekki sama um þau sem hafa ekki aðgang að hreinu vatni. Þeim er ekki sama um að stúlkur komist ekki í skóla vegna þess að þær þurfi að nota svo mikinn tíma í að sækja vatn langar leiðir. Þeim finnst líka ósanngjarnt að skyldur heimilisins hvíli langmest á konum og stúlkum. Hreint vatn í næsta nágrenni gerir þeim kleift að komast í skóla, með menntun nær jafnrétti frekar fram að ganga, þó að það geti tekið tíma. Þú getur verið ósammála innihaldi fermingarinnar en ertu ekki sammála því að allir eigi að hafa aðgang að hreinu vatni? Þú getur verið ósammála því að gera Jesú að leiðtoga lífs þíns, en ertu ekki sammála því að stúlkur fái að ganga í skóla og jafnrétti kynjanna aukist? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Það er sjálfsagt misjafnt hvað fólk hugsar um þegar það hugsar um fermingu. Sumir hafa þá skoðun að börnin sem láti ferma sig hugsi bara um gjafirnar og meini eiginlega ekkert með þessu. Ég tel að þetta séu fordómar sem eigi ekki við rök að styðjast. Ég hef bara of mikil samskipti við fermingarbörn og starfsmenn kirkjunnar sem sinna fermingarfræðslu til að taka mark á slíkri fullyrðingu. Allt annar sannleikur blasir nefnilega við mér. Þau vita vel um hvað þetta snýst, hafa skoðanir á lífinu, trúnni og þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera maður. Um þetta eru þau að fjalla allan veturinn í fermingarfræðslunni. Ferming hvað? Svar Hjálparstarfs kirkjunnar væri: Stórkostleg ábyrgð á systur og bróður í Afríku, ekki bara í orði heldur í verki. Þú hváir kannski enn. Jú, um 3.000 fermingarbörn standa fyrir söfnun til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í nóvember á hverju ári. Þau ganga í hús með merkta bauka Hjálparstarfs kirkjunnar og setja þrýsting á okkur hin að leggja okkar af mörkum af því að þeim er ekki sama um þau sem hafa ekki aðgang að hreinu vatni. Þeim er ekki sama um að stúlkur komist ekki í skóla vegna þess að þær þurfi að nota svo mikinn tíma í að sækja vatn langar leiðir. Þeim finnst líka ósanngjarnt að skyldur heimilisins hvíli langmest á konum og stúlkum. Hreint vatn í næsta nágrenni gerir þeim kleift að komast í skóla, með menntun nær jafnrétti frekar fram að ganga, þó að það geti tekið tíma. Þú getur verið ósammála innihaldi fermingarinnar en ertu ekki sammála því að allir eigi að hafa aðgang að hreinu vatni? Þú getur verið ósammála því að gera Jesú að leiðtoga lífs þíns, en ertu ekki sammála því að stúlkur fái að ganga í skóla og jafnrétti kynjanna aukist?
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar