Samstarf

Loftbóludekk frá Bridgestone

Fyrirtækið Betra grip ehf. rekur heildverslun að Lágmúla 9, með verkstæðistæki frá Ravaglioli og viðgerðavörur fyrir hjólbarða frá Tip Top. Fyrirtækið er jafnframt umboðs- og söluaðili fyrir Bridgestone- og Firestone-hjólbarða, sem framkvæmdastjórinn Arngrímur Þorgrímsson segir vera með þeim bestu sem völ er á.

„Að öðrum ólöstuðum er Bridgestone stærsti og einn virtasti dekkjaframleiðandi á markaðnum, með höfuðstöðvar í Japan og framleiðslu um allan heim. Við flytjum inn Bridgestone-hjólbarða fyrir allar gerðir bifreiða, allt frá dekkjum undir fólksbíla og upp í stór og sterk lyftaradekk sem vega hálft tonn. Um þessar mundir erum við svo einmitt að fá þaðan nýjustu línu loftbóludekkja, þriðju kynslóðina WS70, í hús," segir Arngrímur og lýsir eiginleikunum nánar.

„Dekkin hafa á skömmum tíma farið sigurför um heiminn enda á ferð fyrsti raunverulegi valkosturinn í stað hefðbundinna nagladekkja. Hjólbarðarnir eru míkroskornir, mjúkir og með loftbólum sem virka eins og öflugar sogskálar. Þær sjúga sig niður í malbikið og draga í sig vökva og hrinda jafnóðum frá sér þegar hjólin snúast. Dekkin eru þannig góð i vetraraðstæðum, hálku, bleytu og snjó og veita töluvert öryggi. Af sömu sökum eru þau hljóðlát og umhverfisvæn og endast vel."

Betra grip starfrækir einnig hjólbarðaverkstæði í húsnæðinu að Lágmúla 9. „Þar vantar aldeilis ekki upp á þjónustulund og reynslu þar sem þaulreynt afgreiðslufólk veitir upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð undir stjórn Jóhannesar Jónssonar, sem hefur unnið í þessum geira í meira en aldarfjórðung og þekkir hann því eins og lófann á sér," segir Arngrímur.

Heildverslunin og verkstæðið eru opin alla virka daga frá klukkan 8 til 18. Verkstæðið er opið á laugardögum frá klukkan 10 til 14.

Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 533-3999 eða á heimasíðu fyrirtækisins, slóðin er betragrip.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×