Nauðungarsala á fimm jörðum Lífsvals 20. október 2011 06:00 Bankinn er stærsti eigandi og stærsti lánardrottinn Lífsvals. Fréttablaðið/GVA
Landsbankinn hefur farið fram á að fimm jarðir í eigu Lífsvals ehf. verði settar á nauðungaruppboð. Þetta gerir bankinn vegna vanskila á skuld upp á rúmar 562 milljónir króna. Þetta kemur fram í Lögbirtingarblaðinu. Jarðirnar sem um ræðir eru Flatey, jörð annars vegar og lóð hins vegar, Haukafell og Kyljuholt í sveitarfélaginu Hornafirði auk jarðarinnar Barkarstaða í Húnaþingi vestra. Félagið Lífsval var stofnað árið 2002 og var stórtækt í jarðakaupum á árunum fyrir hrun. Er félagið eigandi að 45 jörðum víðs vegar um landið og á til að mynda um 1 prósent af mjólkurkvóta landsins. Á Flatey á Mýrum í A-Skaftafellssýslu hefur Lífsval rekið stórt kúabú og rekur auk þess tvö sauðfjárbú. Sýslumaðurinn á Höfn tekur kröfu Landsbankans fyrir í nóvember en Lífsval hefur möguleika á að fá beiðnina afturkallaða. Lífsval hefur ekki skilað ársreikningi frá árinu 2009 en þá skuldaði fyrirtækið 3,26 milljarða króna, þar af 2,4 milljarða til Landsbankans. Landsbankinn er raunar sjálfur stærsti eigandi Lífsvals með 36 prósenta eignarhlut sem dótturfélagið Hömlur fer með. Hefur eignarhlutinn vaxið úr 19 prósentum í lok árs 2008 þar sem bankinn hefur tekið yfir hlutafé félaga sem farið hafa í þrot. Meðal annarra sem voru hluthafar í félaginu í lok árs 2008 voru Ingvar Jónadab Karlsson með 16,86 prósenta hlut, Ólafur Ívan Wernersson með 15,63 prósent og Guðmundur A. Birgisson, kenndur við Núp í Ölfusi, með 10,45 prósent. Guðmundur komst hjá gjaldþroti með samkomulagi við Landsbankann í upphafi árs.- mþl
Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira