Arion setur tvö hundruð milljónir í rekstur Pennans 20. október 2011 00:01
Viðskipti Arion banki setti 200 milljónir króna í reiðufé inn í Pennann á Íslandi í lok september síðastliðins til að mæta þungum rekstri félagsins. Penninn hefur tapað rúmum milljarði króna á síðustu tveimur árum eftir að nýtt félag var stofnað utan um rekstur hans. Eignabjarg, félag sem er að fullu í eigu Arion banka, á allt hlutafé í Pennanum eftir að bankinn breytti um 1,2 milljörðum króna af skuldum Pennans við sig í hlutafé vorið 2009. Eigið fé Pennans var ekki orðið neikvætt þegar ákvörðun um hlutafjárinnspýtinguna var tekin, en rekstur fyrirtækisins hefur þó verið þungur, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Nýi Penninn tapaði 697 milljónum króna á árinu 2009. Í fyrra nam tap hans 339 milljónum króna og því hefur fyrirtækið samtals tapað 1.036 milljónum króna frá því að það var sett á fót. Um helmingur tapsins á árinu 2010 var vegna sérstakrar gjaldfærslu upp á 169 milljónir króna sem var bókfærð á því ári. Um einskiptiskostnað er að ræða sem er meðal annars tilkominn vegna starfslokasamninga. Eigið fé Pennans minnkaði um 339 milljónir króna í fyrra þrátt fyrir að velta félagsins hafi aukist töluvert. Hún var 4,7 milljarðar króna í fyrra, um 800 milljónum krónum meiri en árið áður. Í skriflegu svari Arion banka til Fréttablaðsins vegna málefna Pennans kemur fram að reksturinn á árinu 2010 hafi einkennst af „umfangsmikilli endurskipulagningu á starfsemi félagsins og með ýmsum hagræðingaraðgerðum tókst að lækka rekstrarkostnað umtalsvert. Þrátt fyrir það var rekstur félagsins undir væntingum á árinu 2010 sem varð til þess að gengið var enn lengra í hagræðingarmálum á árinu 2011 sem nú er farið að skila sér inn í reksturinn [...] Fyrstu 9 mánuði ársins 2011 er rekstur Pennans í takt við áætlanir“. Hlutafjáraukningin hafi verið „lokaáfanginn í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins og jafnframt fyrsta skrefið í undirbúningi söluferlis sem ráðgert er að hefjist í byrjun árs 2012.“- þsj / sjá síðu 18
Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira