Samstarf

Sérfróðir um rafgeyma

Rafgeymasalan
Rafgeymasalan
Meira er að gera hjá Rafgeymasölunni nú en eftir hrun, einkum í rafgeymadeildinni. Mynd/gva
Rafgeymasalan sérhæfir sig í sölu og þjónustu á rafgeymum fyrir allar tegundir farartækja, svo sem bíla, vinnuvélar og báta. „Eins erum við með geyma í gólfþvottavélar, golfbíla, golfkerrur, vinnulyftur og fleira. Auk þess erum við stórir í varaafli fyrir tölvur og UPSa,“ segir Sigfús Tómasson, starfsmaður Rafgeymasölunnar. Hann segir fólk geta komið og fengið geyminn sinn mældan sér að kostnaðarlausu. „Við álagsprófum hann, athugum hleðslu og setjum í nýjan ef þarf,“ segir Sigfús. Hann segir meira að gera nú en fyrir hrun og þá sérstaklega í rafgeymadeildinni. „Fólk keypti sér ekki nýja bíla í tvö til þrjú ár og fleiri þurfa því á viðhaldi að halda.“ Sigfús segir fyrsta rafgeyminn yfirleitt duga í sex til átta ár en rafgeymar í eldri bílum endast í um það bil fjögur. Rafgeymasalan rekur sögu sína til ársins 1948 þegar Rafgeymir hf. var stofnað við Lækinn í Hafnarfirði. Þar voru framleiddir KENTAR-rafgeymar og var vinnan fólgin í því að búa til rafgeyma frá grunni, eins nærri því og komist var. „Á þessum árum var innflutningsbann á rafgeymum eins og fleiri vörum sem menn álitu að hægt væri að framleiða hér á landi. Í kringum 1970 voru þessi höft afnumin og menn fóru að huga að innflutningi á erlendum rafgeymum. Enn má sjá rafgeymi sem var framleiddur hér á landi hjá Rafgeymasölunni en í dag flytur fyrirtækið aðallega inn geyma frá þýska framleiðandanum Berga.“ Árið 1982 keypti Ármann Sigurðsson, núverandi eigandi, rekstur Rafgeymis hf. en hann hafði starfað hjá fyrirtækinu frá árinu 1957. Hann gaf því nafnið Rafgeymasalan ehf. og hefur það verið rekið undir því nafni síðan. Árið 1998 flutti fyrirtækið í núverandi húsnæði að Dalshrauni 17. Þar starfa þrír starfsmenn, aðstaðan er til fyrirmyndar og er rík áhersla lögð á fyrirtaks þjónustu.






Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×