Framtíðarsýn á You Are in Control Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar 10. október 2011 06:00 Stafræna byltingin er staðreynd sem hefur breytt atvinnuháttum okkar og krefst nýs hugsunarháttar af stefnumótandi aðilum og leiðandi öflum í atvinnulífinu. Mikill vöxtur skapandi greina er ekki síst afsprengi stafrænnar byltingar. Ný listform og dreifileiðir eiga auðveldari aðgang að neytendum. Við getum nálgast neytandann á gagnvirkari hátt en áður og leiðandi álitsgjafar eru nú oft úr röðum almennings jafnt sem fjölmiðlamanna eða gagnrýnenda. Tæknifyrirtæki hafa sprottið upp og eflst af þessum sökum. Efnisgerð og listsköpun á nú orðið greiðari leið yfir landamæri og útflutningur því ekki sama ögrun og áður var. Þessi þróun þýðir að engin atvinnugrein í Evrópu eða jafnvel heiminum öllum býr við jafn hraðan hagvöxt og skapandi greinar. Á YAIC er rýnt í hvernig viðskipti og dreifileiðir skapandi greina eru að þróast. Þetta er eina ráðstefnan í þessum efnum á Íslandi þar sem listir og efnisgerð er skoðuð í samhengi við tækniþróun. YAIC er ætlað að auðvelda þeim sem starfa í skapandi greinum á Íslandi að mynda tengsl við þá sem eru fremstir á alþjóðavettvangi í menningarviðskiptum og markaðssetningu og um leið að fræðast um það framsæknasta sem er að gerast í þessum efnum. Í ár verður sjónunum beint sérstaklega að höfundarrétti. Þannig verður tekist á um þær ólíku leiðir sem menn vilja fara – annars vegar þar sem frítt menningarefni er sagt sjónarspil og hins vegar þar sem því er haldið fram að tæknivæðingin sé burðarás framþróunar. Hins vegar verður litið á aukinn samruna og samvinnuform skapandi greina. Nýjar leiðir í markaðssetningu og samskiptaaðferðum. You Are in Control (YAIC) er samstarfsverkefni okkar sem störfum í tónlist, sviðslistum, hönnun, leikjagerð, bókmenntum, myndlist og kvikmyndum. Við höfum áður unnið sameiginlega að því að láta taka saman hagræn áhrif skapandi greina fyrir íslenskt samfélag sem sýndi að hér er á ferðinni einn stærsti atvinnuvegur þjóðarinnar með um 200 milljarða króna veltu. YAIC er mikilvægur vettvangur til að skoða þau fjölmörgu tækifæri sem felast í skapandi greinum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Íslendingar sem ég hef hitt þegar ég reyni að tala íslensku Valerio Gargiulo Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Engin fyrirtæki engin þjónusta Guðný María Jóhannsdóttir Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Öruggt húsnæði jafngildir mannréttindum Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við erum í sama liðinu Arnór Tumi Jóhannsson, Skoðun Skoðun Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson skrifar Skoðun Verk að vinna Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Foreldrahús lokar 1. maí! Viljum við það? Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Íslendingar sem ég hef hitt þegar ég reyni að tala íslensku Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Öruggt húsnæði jafngildir mannréttindum Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Engin fyrirtæki engin þjónusta Guðný María Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Við erum í sama liðinu skrifar Skoðun Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Gefum loforð í sumargjöf Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Sjá meira
Stafræna byltingin er staðreynd sem hefur breytt atvinnuháttum okkar og krefst nýs hugsunarháttar af stefnumótandi aðilum og leiðandi öflum í atvinnulífinu. Mikill vöxtur skapandi greina er ekki síst afsprengi stafrænnar byltingar. Ný listform og dreifileiðir eiga auðveldari aðgang að neytendum. Við getum nálgast neytandann á gagnvirkari hátt en áður og leiðandi álitsgjafar eru nú oft úr röðum almennings jafnt sem fjölmiðlamanna eða gagnrýnenda. Tæknifyrirtæki hafa sprottið upp og eflst af þessum sökum. Efnisgerð og listsköpun á nú orðið greiðari leið yfir landamæri og útflutningur því ekki sama ögrun og áður var. Þessi þróun þýðir að engin atvinnugrein í Evrópu eða jafnvel heiminum öllum býr við jafn hraðan hagvöxt og skapandi greinar. Á YAIC er rýnt í hvernig viðskipti og dreifileiðir skapandi greina eru að þróast. Þetta er eina ráðstefnan í þessum efnum á Íslandi þar sem listir og efnisgerð er skoðuð í samhengi við tækniþróun. YAIC er ætlað að auðvelda þeim sem starfa í skapandi greinum á Íslandi að mynda tengsl við þá sem eru fremstir á alþjóðavettvangi í menningarviðskiptum og markaðssetningu og um leið að fræðast um það framsæknasta sem er að gerast í þessum efnum. Í ár verður sjónunum beint sérstaklega að höfundarrétti. Þannig verður tekist á um þær ólíku leiðir sem menn vilja fara – annars vegar þar sem frítt menningarefni er sagt sjónarspil og hins vegar þar sem því er haldið fram að tæknivæðingin sé burðarás framþróunar. Hins vegar verður litið á aukinn samruna og samvinnuform skapandi greina. Nýjar leiðir í markaðssetningu og samskiptaaðferðum. You Are in Control (YAIC) er samstarfsverkefni okkar sem störfum í tónlist, sviðslistum, hönnun, leikjagerð, bókmenntum, myndlist og kvikmyndum. Við höfum áður unnið sameiginlega að því að láta taka saman hagræn áhrif skapandi greina fyrir íslenskt samfélag sem sýndi að hér er á ferðinni einn stærsti atvinnuvegur þjóðarinnar með um 200 milljarða króna veltu. YAIC er mikilvægur vettvangur til að skoða þau fjölmörgu tækifæri sem felast í skapandi greinum.
Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson skrifar
Skoðun Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar