Hylmir þú yfir glæp? Petrína Ásgeirsdóttir skrifar 5. október 2011 06:00 Kynferðisofbeldi gegn börnum er alvarlegt vandamál um heim allan. Myndefni á netinu þar sem börn eru beitt kynferðisofbeldi og sýnd á kynferðislegan hátt, oft nefnt barnaklám, er ein birtingarmynd þess. Slíku efni hefur lengi verið dreift manna á meðal en með tilkomu netsins hefur umfangið aukist til muna og erfiðara er að stemma stigu við því. Tengsl eru á milli mansals og framleiðslu á myndefninu. Börn í fátækum löndum, og löndum þar sem lítil áhersla er lögð á vernd barna, eru afar berskjölduð fyrir hvers konar ofbeldi. Framleiðsla, varsla og dreifing á áðurnefndu myndefni er ofbeldi gagnvart börnum og alvarlegt brot á réttindum þeirra. Það hefur í för með sér miklar þjáningar og niðurlægingu fyrir þau börn sem í hlut eiga og er vitnisburður um glæpi sem þau hafa verið beitt. Með dreifingu myndefnisins á netinu, heldur ofbeldið gegn barninu áfram og brotamönnunum fjölgar þar sem þeir sem sækjast eftir efninu viðhalda eftirspurn og þar með ofbeldinu. Barn er einstaklingur undir 18 ára aldri. Samkvæmt 19. og 34. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga börn rétt á vernd gegn líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi og gegn þátttöku í hvers kyns kynferðislegri háttsemi, vændi eða klámi. Oft er því borið við af brotamönnum sem nýta sér slíkt efni á netinu, að þeir hafi ekki vitað að um barn væri að ræða. Hér gildir að barn skal ávallt njóta vafans og mikilvægt að tilkynna um efni ef minnsti grunur er um að barn komi þar við sögu. Það er brýnt að almenningur haldi vöku sinni við að uppræta efni af þessum toga. Barnaheill - Save the Children á Íslandi, í samstarfi við SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) og embætti ríkislögreglustjóra, hafa nú endurbætt ábendingahnapp um ólöglegt og óviðeigandi efni tengt börnum á netinu. Hnappinn er að finna á www.barnaheill.is og markmiðið er að hann fari á vefsíður fyrirtækja og stofnana. Með því að tilkynna um efni þar sem börn eru beitt kynferðislegu ofbeldi, getur almenningur lagt hönd á plóg við að loka vefsíðum og stuðlað að því að gerendur og þolendur finnist. Það verður að stöðva ofbeldi og glæpi gegn börnum á netinu. Strax. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Íslendingar sem ég hef hitt þegar ég reyni að tala íslensku Valerio Gargiulo Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Engin fyrirtæki engin þjónusta Guðný María Jóhannsdóttir Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Öruggt húsnæði jafngildir mannréttindum Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Réttur barna til menntunar Salvör Nordal skrifar Skoðun Grundarreitur í gamla Hveragerði - byggjum rétt Arnar H. Halldórsson skrifar Skoðun Inngilding og þátttaka fatlaðra barna Snæfríður Þóra Egilson skrifar Skoðun Af hlutleysisstefnu ríkisútvarpsins og falleinkunn fjármálaráðs Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson skrifar Skoðun Verk að vinna Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Foreldrahús lokar 1. maí! Viljum við það? Dagbjört Ósk Steindórsdóttir skrifar Skoðun Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Íslendingar sem ég hef hitt þegar ég reyni að tala íslensku Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Öruggt húsnæði jafngildir mannréttindum Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Engin fyrirtæki engin þjónusta Guðný María Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Við erum í sama liðinu skrifar Skoðun Þegar hávaðinn ræður ferðinni Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Gefum loforð í sumargjöf Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Kynferðisofbeldi gegn börnum er alvarlegt vandamál um heim allan. Myndefni á netinu þar sem börn eru beitt kynferðisofbeldi og sýnd á kynferðislegan hátt, oft nefnt barnaklám, er ein birtingarmynd þess. Slíku efni hefur lengi verið dreift manna á meðal en með tilkomu netsins hefur umfangið aukist til muna og erfiðara er að stemma stigu við því. Tengsl eru á milli mansals og framleiðslu á myndefninu. Börn í fátækum löndum, og löndum þar sem lítil áhersla er lögð á vernd barna, eru afar berskjölduð fyrir hvers konar ofbeldi. Framleiðsla, varsla og dreifing á áðurnefndu myndefni er ofbeldi gagnvart börnum og alvarlegt brot á réttindum þeirra. Það hefur í för með sér miklar þjáningar og niðurlægingu fyrir þau börn sem í hlut eiga og er vitnisburður um glæpi sem þau hafa verið beitt. Með dreifingu myndefnisins á netinu, heldur ofbeldið gegn barninu áfram og brotamönnunum fjölgar þar sem þeir sem sækjast eftir efninu viðhalda eftirspurn og þar með ofbeldinu. Barn er einstaklingur undir 18 ára aldri. Samkvæmt 19. og 34. gr. barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga börn rétt á vernd gegn líkamlegu, andlegu og kynferðislegu ofbeldi og gegn þátttöku í hvers kyns kynferðislegri háttsemi, vændi eða klámi. Oft er því borið við af brotamönnum sem nýta sér slíkt efni á netinu, að þeir hafi ekki vitað að um barn væri að ræða. Hér gildir að barn skal ávallt njóta vafans og mikilvægt að tilkynna um efni ef minnsti grunur er um að barn komi þar við sögu. Það er brýnt að almenningur haldi vöku sinni við að uppræta efni af þessum toga. Barnaheill - Save the Children á Íslandi, í samstarfi við SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) og embætti ríkislögreglustjóra, hafa nú endurbætt ábendingahnapp um ólöglegt og óviðeigandi efni tengt börnum á netinu. Hnappinn er að finna á www.barnaheill.is og markmiðið er að hann fari á vefsíður fyrirtækja og stofnana. Með því að tilkynna um efni þar sem börn eru beitt kynferðislegu ofbeldi, getur almenningur lagt hönd á plóg við að loka vefsíðum og stuðlað að því að gerendur og þolendur finnist. Það verður að stöðva ofbeldi og glæpi gegn börnum á netinu. Strax.
Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson Skoðun
Skoðun Af hlutleysisstefnu ríkisútvarpsins og falleinkunn fjármálaráðs Brynjar Níelsson skrifar
Skoðun Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson skrifar
Skoðun Meirihluti fólks með fötlun í Bretlandi styður rétt til dánaraðstoðar Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Fimm sunnlensk sveitarfélög neita íbúum um velferðarþjónustu án skýrrar lagaheimildar Guðrún Margrét Njálsdóttir,Steinþór Hreinsson,Þröstur Sverrisson Skoðun