Forseti Íslands, valddreifing og valdtemprun 4. október 2011 06:00 Nokkrar umræður hafa skapast vegna ákvæða í frumvarpi Stjórnlagaráðs um hlutverk forseta Íslands. Í þessum umræðum hefur það greinilega truflað marga hvernig því embætti er gegnt um þessar mundir. Raunar er það ekki nýtt, því að í vinnunni varðandi stjórnarskrána varð að gæta þess að festast ekki alveg í núinu og fortíðinni, heldur horfa fram á við. Í ljósi reynslunnar var það meginstef í nýrri stjórnarskrá að tryggja lýðræði, valddreifingu, valdtemprun, gagnsæi og heiðarleika. Ef þetta á að takast þarf að taka sem flesta aðila inn í valdakerfið og tryggja sem jafnasta stöðu þeirra til þess að koma í veg fyrir misvægi og fáræði. Eftir miklar vangaveltur varð það niðurstaðan, að nytsamt gæti verið að hlutverk forseta Íslands sem eina persónukjörna embættismanns þjóðarinnar yrði meðal annars í því fólgið að vera nokkurs konar öryggisventill í því kerfi valddreifingar og valdtemprunar sem hér yrði. Þetta þarf ekki sjálfkrafa að þýða stóraukið vald forsetans með því að einblína á nokkur ný viðfangsefni, sem honum eru ætluð, heldur verður að líta á stjórnarskrána í samhengi. Dæmi: Í núverandi stjórnarskrá er forseti Íslands eini aðili ríkisvaldsins, sem hefur beina lagaheimild til málskotsréttar til þjóðarinnar. Í frumvarpi Stjórnlagaráðs er þessu valdi hins vegar dreift, þannig að 10% þjóðarinnar fá líka þetta vald auk þess sem 2% þjóðarinnar geta lagt fram mál á Alþingi sem á endanum getur farið í dóm þjóðarinnar. Þegar horft er yfir þetta sést, að með þessum ákvæðum er minni byrði lögð á forseta Íslands varðandi það að vísa málum í þjóðaratkvæðagreiðslu en áður var þegar hann var eini aðilinn sem gat gert þetta í samræmi við sérstakt ákvæði i stjórnarskrá. Í stað eins farvegs fyrir þetta eina ferli eru komnir þrír og þjóðinni sjálfri falið hlutverk og ábyrgð í þessu efni. Að öðru jöfnu getur þetta varla talist annað en að dregið sé úr vægi forsetans í þessum efnum. Í stað þess að hann einn telji sig þurfa að hafa frumkvæði til málskots getur hann haldið sig til hlés og leyft þjóðinni sjálfri að fást við þetta. Að vísu er málskotsréttur hans í nýju stjórnarskránni ekki með neinum takmörkunum, en ef menn eru með hugann við vald hans hlýtur það samt að hafa minnkað á þessu mikilvæga sviði. Aðrar breytingar á starfssviði og hlutverki forseta Íslands miða að því að gera ákvæði um það skýrari en nú er, til dæmis við myndun ríkisstjórna. Allt frá því að Sveinn Björnsson, þáverandi ríkisstjóri, myndaði utanþingsstjórn 1942, hafa þeir sem hafa gegnt forsetaembætti getað þrýst á stjórnarmyndun með því að gefa í skyn að þeir myndu mynda utanþingsstjórn og má nefna nokkur dæmi um þetta. Í þessu hefur falist talsvert vald þótt því hafi ekki verið beitt beint. Í frumvarpi Stjórnlagaráðs er gert ráð fyrir öðru fyrirkomulagi hvað þetta varðar og forseta Íslands fengið ákveðið hlutverk eftir nýjum reglum þar um. Það kann að gefa honum vald, en fyrst og fremst er það hugsað sem hluti af valddreifingu og valdtemprun sem gengur eins og rauður þráður í gegnum frumvarpið. Valdþættirnir þrír, framkvæmdavald, löggjafarvald og dómsvald, eru í nútímaþjóðfélagi aðeins þrír af fimm, því að fjölmiðlun og auðræði hafa bæst við. Gaman hefði verið að fást nánar við síðastnefndu þættina í nýrri stjórnarskrá og bæta öðru nýyrði við auðræði, „fláræði“, sem tákn um það vald sem getur falist í blekkingum og óheiðarleika, meðal annars á sviði fjölmiðlunar. Því að reynsla síðustu ára hefur sýnt hve lítils raunverulegt lýðræði má sín gegn hinni banvænu blöndu: Auðræði, fáræði og fláræði þegar þetta þrennt er njörvað saman. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun Skoðun Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt Skoðun