Framtíð ferðamála á Íslandi til umræðu Árni Björn Guðjónsson skrifar 26. september 2011 11:00 Gera má ráð fyrir fjölgun ferðamanna til Íslands sem nemur hundruðum þúsunda ef aðstæður verða líkar því sem er í dag á næstu árum. Ekki er augljóst hvaða skipulag verður haft við að taka á móti fjölgun í svo miklum mæli, ekkert hefur heyrst um það. Það er augljóst að það þarf að fjárfesta í ferðaþjónustu eins og um stóriðju sé að ræða enda eru miklir tekjumöguleikar í greininni. Vekja þarf upp fjárfesta. En augljóst er að það þarf skipulag svo ekki verði öngþveiti við svokallaðar náttúruperlur eins og Gullfoss og Geysi og álíka staði sem gætu legið undir skemmdum ef ekki er takmarkaður aðgangur á álagstímum. Það þarf auðvitað að vera í lagi með snyrtingu og fleira. Það liggur fyrir að það þarf að takmarka aðgang á staðina á dag. Íbúar á Havaí eru 1.300.000 en ferðamenn 7.6 milljónir. Sama hlutfall á Íslandi væru tæp 1.800.000. Eitt er að það væri hægt að fjölga viðkomustöðum ferðamanna með manngerðum stöðum. Ég hef hugsað mikið um af hverju heita vatnið er ekki notað meira til að draga ferðamenn til landsins eins og til dæmis með svokölluðum vatnagörðum (water park).Með því að gera það væri hægt að koma á skipulagi á aðkomu ferðamanna á þessar náttúruperlur okkar. Gríðarlega mikið af heitu vatni rennur út í náttúruna án þess að það sé notað nema að litlu leyti, sérstaklega er það á Suðurlandi. Mín hugmynd er að byggðar verði ferðamannamiðstöðvar í kringum heita vatnið sem mætti kalla Vatnagarða eins og er í útlöndum. Þessir garðar væru með gistingu fyrir mikinn fjölda eða 2.000-3.000 manns hver sem dveldu þar mislangan tíma og nytu heita vatnsins sem heilsutengdrar þjónustu. Opið allt árið. Náttúrulegast er að gisting sé í litlum timburhúsum. Ein svona miðstöð ætti að geta tekið á móti um 40.000 ferðamönnum á ári þegar allt er komið í gang. Þetta er hugsað sem viðbót við hótelin í Reykjavík. Í kringum þessa vatnagarða hefðu þjónustuaðilar aðstöðu sem byði upp á ferðir til okkar vinsælustu náttúruperlna og s.s. hestaferðir, jöklaferðir og fleira. Ferðaskrifstofur sæju um að bóka á þessar miðstöðvar ásamt fleirum. Ýmis þjónusta þyrfti að vera til dægrastyttingar og heilsuræktar og önnur þjónusta eins og hárgreiðslustofur, nudd og fleira sem áhugavert er að bjóða upp á, einnig verslanir ýmiss konar. Sem sagt mikil atvinna. Þetta er hugmynd til umræðu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Skoðun Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar