Verslunin Iceland verður seld fyrir áramót 26. september 2011 05:00 stofnandi sýnir úrvalið Bresku matvörukeðjunni Iceland Foods hefur verið líkt við gullkú enda hefur hún skilað eigendum sínum góðum arði. Fréttablaðið/Hafliði
Stjórnendur bresku verslanakeðjunnar Asda, sem er í eigu Wal-Mart, hafa tryggt sér fjármögnun fyrir væntanlegt tilboðsferli í eignarhluti skilanefnda Landsbankans og Glitnis í lágvöruverðsverslunina Iceland Foods. Tilboðsgögn og fjárhagsupplýsingar verða send væntanlegum bjóðendum í vikunni, að því fram kemur í netútgáfu breska blaðsins Sunday Times í gær. Stefnt mun að því að selja hlutinn fyrir áramót. Þrotabú gamla Landsbankans á 67 prósenta hlut í Iceland Foods og er hann verðmætasta eign búsins. Skilanefnd Glitnis á tíu prósent og verður hlutinn seldur með hlut Landsbankans. Afganginn á Malcolm Walker, forstjóri og stofnandi fyrirtækisins, og stjórnendur verslunarinnar. Rætt hefur verið um að verðmiðinn geti numið 1,5 milljörðum punda, ríflega 270 milljörðum króna. Forstjórinn hefur verið nefndur sem einn þeirra sem beri víurnar í verslunina. Hann bauð einn milljarð punda í hlut skilanefndar Landsbankans í fyrra. Boðinu var hafnað. Baugur og Fons, félag Pálma Haraldssonar, áttu saman sextíu prósenta hlut á sínum tíma ásamt Milestone, Kaupþingi, Landsbankanum og stjórnendum verslunarinnar. Þrotabúin eignuðust hlutina í eftirskjálfta efnahagshrunsins í febrúar árið 2009.- jab
Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Viðskipti erlent Komin með ný nöfn Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Sjá meira