Skoðun

Norrænar konur gegn ofbeldi

Dorit Otzen skrifar
Við hjá Hreiðrinu og í Svanahópunum í Danmörku óskum Stígamótum til hamingju með nýjasta framtakið. Við gleðjumst yfir því að Stígamót skuli ennþá einu sinni beina athyglinni að þeim skuggahliðum nútíma samfélags sem eru vændi og verslun með konur.

Norrænar konur gegn ofbeldi, sem eru samtök norrænu kvennaathvarfahreyfinganna, hittast á hverju ári í einhverju Norðurlandaríkjanna á sameiginlegri ráðstefnu. Þar eru ýmsir þættir ofbeldis ræddir og dregnir fram í dagsljósið. Þar hittast fleiri hundruð konur frá hinum tæplega 300 norrænu kvennaathvörfum og hlusta á norræna og alþjóðlega sérfræðinga. Þannig er tryggt að upplýsingastreymið sé virkt og allir hafi tækifæri til þess að fylgjast með.

Á Norrænu ráðstefnunni okkar á Íslandi árið 2001 voru vændi og mansal sett á dagskrá samtakanna og hafa síðan verið fastur liður árlega í samstarfi á milli landa.

Norrænar konur gegn ofbeldi hafa þannig beitt sér gegn þeim þáttum ofbeldis sem tryggja bakmönnunum þvílíkan gróða að mansal keppir við vopnasmygl og sölu fíkniefna um að vera ábatasamasta birtingarmynd skipulagðrar glæpastarfsemi.

Allan þennan tíma hafa Hreiðrið og Stígamót átt í miklu og nánu samstarfi við að beita sér gegn glæpum sem eru svo alvarlegir að aðeins hugmyndaflugið setur þeim takmörk.

Í gegnum áratuga vinnu með nauðganir, kynferðisofbeldi gegn börnum og annað kynferðisofbeldi hafa Stígamót kynnst vændi og annars konar verslun með konur.

Svanahóparnir voru upprunalega stofnaðir í Danmörku en eru nú starfræktir á Íslandi og í Noregi. Hópurinn „Norrænu svanirnir“ var stofnaður til þess að opna leiðir fyrir konur út úr vændi og klámiðnaðinum.

Ég vona að vinnan í Svanahópum Stígamóta verði til þess að aflífa hinar mörgu goðsagnir um vændi. Hóparnir munu vonandi geta tryggt þeim konum sem hafa beðið skaða af veru sinni í vændi þá hjálp sem þarf til þess að byggja upp líf án svipmynda, martraða, svefn- og einbeitingarerfiðleika og hræðslu við nánd og náin sambönd.

Ég vildi óska þess að starf Stígamóta með fólki sem beitt hefur verið nauðgunum, sifjaspellum, vændi og mansali væri óþarft. En samtímis óska ég Íslendingum til hamingju með að Stígamót skuli vera óþreytandi í baráttu sinni gegn ofbeldi.




Skoðun

Sjá meira


×