Norðurál bauð líka í hlutinn í HS Orku 9. september 2011 10:00
Norðurál hafði hug á að kaupa hlut Geysis Green Energy í HS Orku árið 2009. Íslandsbanki sá um söluna og ákveðið var að ganga frekar að tilboði Magma Energy Sweden, dótturfyrirtækis kanadíska fyrirtækisins Magma Energy. „Ég get staðfest það að Norðurál tók þátt í söluferli á bréfum í HS Orku sem Íslandsbanki hélt utan um. Íslandsbanki ákvað að selja hlutabréfin í HS til Magma. Við erum sannfærð um að okkar tilboð hafi verið mjög samkeppnishæft en samt sem áður var tilboði Magma tekið," segir Ágúst Hafberg hjá Norðuráli. Kaup Magma á hlut Geysis Green voru mjög umdeild og fjármálaráðherra leitaði leiða til að ganga inn í kaupin fyrir hönd ríkisins. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra lá undir ámæli á Alþingi í gær, en hann var sakaður um að hafa haft óeðlilega aðkomu að málinu. Steingrímur segir það af og frá, hann hafi verið að reyna að tryggja það að meirihluti, eða að minnsta kosti helmingur HS Orku, yrði í eigu innlendra aðila. Reynt hafi verið að koma saman eigendahópi en þær tilraunir hafi runnið út í sandinn. Ágúst segir að einmitt það hafi Norðurálsmenn reynt; að koma saman eigendahópi um fjárfestingu í HS Orku. „Norðurál tók þátt í þessu söluferli til að tryggja að HS hefði fjárhagslegt bolmagn til að til að ljúka við orkuöflunarverkefni á Reykjanesi og standa við samningsskuldbindingar sínar vegna Helguvíkurálversins. Meðal annars bauðst Norðurál til þess að taka þátt í fjárfestingu í HS Orku sem minnihlutaeigandi með öðrum íslenskum fjárfestum, t.d. lífeyrissjóðum. Staðan í dag er sú að HS Orka er að reyna að komast undan skuldbindingum sínum sem skilgreindar eru í orkusamningi milli fyrirtækjanna." Deila Norðuráls og HS Orku um orkusölusamninga vegna álversins í Helguvík er fyrir gerðardómi. Búist er við niðurstöðum úr því máli í næstu viku.- kóp
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira