Skoðun

Óþolsaðferðin gegn bulli

Guðmundur Jón Guðmundsson skrifar
Þann 16. ágúst sl. birtist í Fréttablaðinu grein eftir fjármálaráðherra þar sem hann svarar skrifum Þorsteins Pálssonar í helgarblaði Fréttablaðsins þar á undan. Ekki verða skrif Þorsteins eða svar ráðherra við þeim gerð að umræðuefni hér heldur var það ákveðin setning í grein ráðherra sem sló mig. Eftir stuttan inngang segir ráðherrann að skrif Þorsteins hafi verið með þeim hætti að: „…ekki verði látið ómótmælt. Hér skal það gert og er til marks um að skrif hans eru almennt svaraverð sem er meira en segja má um ýmsa aðra.”

Ég er áreiðanlega ekki einn um það að hafa ofboðið hvernig ríkisstjórnin hefur látið pólitíska pörupilta komast upp með að afbaka og úthrópa nær allar gerðir sínar án þess að svara fyrir sig. Óhróður, lygar og afbakanir eru vissulega hvimleiðar en menn ættu að hafa það í huga að sé slíkt endurtekið nógu oft án andsvara fara einfaldar sálir að trúa þeim. Hér skal þó tekið fram að ekki eru allir ráðherrar undir sömu sökina seldir hvað þetta varðar. Framganga Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra hefur verið til fyrirmyndar í ýmsum málum, t.d. hvað varðar rofið á hringveginum og upphlaup framkvæmdastjóra samtaka ferðaþjónustunnar í því sambandi sem virðist nú reyndar hafa átt sér flokkspólitískar rætur en ekki mótast af hagsmunum greinarinnar.

Svipaða sögu má segja um moldviðrið kringum fangelsismálin eða veggjöldin. Einnig er rétt að benda á framgöngu aðstoðarmanns menntamálaráðherra varðandi málefni Kvikmyndaskóla Íslands en hann einfaldlega mætti í viðtal í útvarpi og útskýrði á málefnalegan hátt fyrir áheyrendum um hvað málið snerist. …fínt hjá honum. Ýmislegt fleira mætti einnig tína til þó það verði ekki gert hér.

Um suma aðra ráðherra verður því miður ekki það sama sagt. Til dæmis komst framkvæmdastjóri LÍÚ upp með það að mæta í gjallarhorn sitt, RÚV, við eigum víst ekkert Ríkisútvarp lengur, og hella lygum og atvinnurógi yfir strandveiðimenn. Ekki heyrðist múkk frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða blaðafulltrúa hans heldur þurfti kona sem mælti fyrir hönd fiskvinnslustöðva að skrifa grein til að bera blak af strandveiðimönnum og leiðrétta rangfærslurnar. Sá ágæti ráðherra sem þarna hefði þurft að vera til andsvara er hins vegar upp um alla veggi þegar fáfengi á borð við hvalveiðar ber á góma að maður tali nú ekki um blessað lambakjötið.

Það er afskaplega skiljanlegt að fjármálaráðherra finnist það ógeðfellt að standa daginn út og daginn inn í því að svara þeim útúrsnúningi og rangfærslum sem dynja á ríkisstjórninni en því miður er það bara ekki inni í myndinni að yppta öxlum og segja: „Þetta er ekki svaravert.“ Því eins og áður sagði þá holar dropinn steininn. Að grípa ekki til gagnaðgerða og svara bullinu með málefnalegum hætti getur haft ófyrirsjáanlegar pólitískar afleiðingar. Ríkisstjórnin verður einfaldlega að hysja upp um sig og taka upp óþolsaðferðina í þessum efnum og nýta til hins ýtrasta þá upplýsingafulltrúa sem starfa í ráðuneytunum svo og aðstoðarmenn ráðherra. Næst þegar einhver veður uppi með þvætting í fréttatíma ljósvakamiðla eða í dagblaði þá sé upplýsingafulltrúi viðkomandi ráðuneytis eða ráðherrann sjálfur mættur í næsta fréttatíma eða tölublað og svari ávirðingunum fullum hálsi.

Að lokum tvær spurningar. Getur einhver upplýst mig um hver sé forsætisráðherra á Íslandi og hvar sú manneskja heldur sig?




Skoðun

Sjá meira


×