Sameina og selja þarf litlu ríkissparisjóðina 13. ágúst 2011 08:00 Elín Jónsdóttir
Steingrímur J. Sigfússon Framtíð þeirra fimm sparisjóða sem ríkið á hlut í er til skoðunar hjá Bankasýslunni. Ákveðið hefur verið að setja hlutinn í Sparisjóði Svarfdæla í opið söluferli og allt bendir til að hið sama verði gert við hlutinn í Sparisjóði Norðfjarðar. Hjá Bankasýslunni er vilji til að selja ríkishlutina og helst að sameina sjóðina. Elín Jónsdóttir, fráfarandi forstjóri Bankasýslunnar, rifjar upp að þetta hafi verið lagt til í vor, að sameina þessa fimm og einnig þá fimm sparisjóði sem ríkið á ekki hlut í. „En það voru engar undirtektir hjá sparisjóðunum. Þeir vildu búa til þrjá til fimm sparisjóði í staðinn, sem hefði ekki haft neina þýðingu að okkar mati,“ segir hún. Síðan fólk frá Bankasýslunni settist í stjórnir sparisjóðanna í vor hafi það svo farið yfir hvað væri til ráða til að koma rekstri þeirra í betra horf. „Og það er það sem er að gerast núna,“ segir Elín og vísar til ákvarðana stjórna fyrrnefndra tveggja sparisjóða. Hún jánkar því að sameiginleg yfirbygging, svo sem upplýsingatæknifyrirtækið TERIS, sé sparisjóðunum þung í róðri, sér í lagi eftir að Byr og SpKef hættu þátttöku. Erfitt verði fyrir litlu félögin að reka kerfið í óbreyttri mynd. Ákvörðun Bankasýslu um sölu á hlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla var tekin í sömu viku og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði í Fréttablaðinu að ekki stæði til að selja sparisjóðina. Steingrímur segir málið byggt á misskilningi. Hann hafi verið að svara spurningu blaðsins um hvaðan tekjur eigi að koma í ríkiskassann. Ekki sé gert ráð fyrir að óverulegir eignarhlutir ríkisins í sparisjóðunum skili miklum söluhagnaði, verði þeir seldir. „En ef það koma óskir um það í sparisjóðunum að leita samstarfs við aðra aðila og mögulega selja hlut ríkisins, þá er það alveg opið. Það er ekki markmið að hanga á þeim eignarhlutum ef aðrir eigendur finnast, ég tala ekki um ef það eru heimaaðilar, þá leggjumst við ekki gegn slíku,“ segir hann: „En við erum hins vegar ekki komin að því að ræða slíkt á grundvelli frumkvæðis frá ríkinu.“ klemens@frettabladid.is
Mest lesið Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Sjá meira