Viðskipti innlent

Fiskvinnslan aftur til sölu á Flateyri

Nú er Byggðastofnun komin með nær alla fiskvinnsluaðstöðuna á Flateyri í sínar hendur þannig að ef áhugasamur kaupandi fæst mun útgerð geta glæðst á ný á staðnum. fréttablaðið/anton
Nú er Byggðastofnun komin með nær alla fiskvinnsluaðstöðuna á Flateyri í sínar hendur þannig að ef áhugasamur kaupandi fæst mun útgerð geta glæðst á ný á staðnum. fréttablaðið/anton
Byggðastofnun er þessa dagana að taka við þeim eignum sem henni eru veðsettar úr höndum skiptastjóra þrotabús Eyrarodda á Flateyri. Það er meginþorri eignanna og nægir til að hefja fiskvinnslu á Flateyri eins og hún var áður.

Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, segir að nú ætti sala eignanna að verða einfaldari. „En framtíð fiskvinnslu á Flateyri ræðst hins vegar, hér eftir sem hingað til, af þeim áhuga sem kaupendur hafa til að nýta aðstæðurnar á staðnum," segir hann.

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga ályktaði um málið og gagnrýndi mjög veðhafana, Landsbankann og Byggðastofnun, sem og skiptastjóra fyrir að draga lappirnar í málinu sem tekið hefur um átta mánuði og á meðan er afar takmörkuð vinnsla í þeirri aðstöðu sem Eyraroddi skilur eftir sig. Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður verkalýðsfélagsins, segir að fólksflótti blasi við ef ekki verði hægt að ýta fiskvinnslu úr vör sem allra fyrst á Flateyri.

Nú þegar eru um 40 manns atvinnulausir á staðnum. Íbúar eru 237 eða 71 færri en fyrir fimm árum. „Það er sorglegt, þegar ég lít til baka og minnist fundanna sem ég átti með fiskvinnslufólki á Flateyri fyrir nokkrum árum. Það voru um hundrað manns á þessum fundum. Nýverið héldum við svona fund á Flateyri; það voru þrettán manns á fundinum, þetta segir allt sem segja þarf um ástandið."

Landsbankinn svaraði ályktun verkalýðsfélagsins og sagði hana byggða á vanþekkingu, bankinn hefði reynt eftir fremsta megni að leysa málið enda sé það ekki veðhöfum í hag að draga söluna á langinn. „Gott og vel," segir Finnbogi á móti, „það kann að vera að við séum sekir um vanþekkingu en þeir sem geta ekki leyst úr þessu, um hvað eru þeir sekir: getuleysi?"

Aðalsteinn Þorsteinsson vill ekki blanda sér í þessi orðaskipti en ítrekar að töfina sé ekki að rekja til deilna Byggðastofnunar og Landsbankans og reyndar hafi slíkar deilur aldrei átt sér stað. Hins vegar hafi tilboð Toppfisks í eigurnar verið háð skilyrðum og það hafi flækt málið. Toppfiskur dró síðan tilboð sitt til baka í síðasta mánuði.jse@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×