Viðskipti innlent

Tap útgáfufélags snýst í hagnað á milli ára

Ari Edwald
Ari Edwald
Hagnaður 365 miðla, útgáfufélags Fréttablaðsins, árið 2010 var 360 milljónir króna eftir skatta og handbært fé frá rekstri 1.106 milljónir. Eigið fé var rúmir tveir milljarðar um áramót. Eru þetta upplýsingar úr ársreikningi 365 miðla ehf. fyrir árið 2010.

Heildarvelta félagsins nam 8.550 milljónum króna síðasta ár og var EBITDA-hagnaður 1.004 milljónir króna. Er það um 25 prósentum meiri hagnaður en árið 2009. Þá nam EBITDA-hagnaðurinn 808 milljónum króna og tapið eftir skatta var 344 milljónir.

Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir útkomuna ánægjulega, sér í lagi í ljósi þess að félagið hafi náð að snúa tapi í hagnað á milli ára. „Það er sérstaklega ánægjulegt miðað við þær aðstæður sem hafa verið,“ segir Ari. „Við erum bæði búin að vera að glíma við skuldir og háan rekstrarkostnað en það er hlutur sem hefur breyst mikið á milli ára.“

Ari segir félagið vera á réttri leið í sínum rekstri og sú þróun hafi haldið áfram á þessu ári. Allir miðlar undir hatti 365 hafi styrkt stöðu sína á markaðnum. Fjárhagsstaðan hafi styrkst verulega. Í lok mars í fyrra hafi hlutafé verið aukið um milljarð króna og því fé hafi að mestu leyti verið ráðstafað til niðurgreiðslu skulda. Jafnframt hafi náðst samningar við viðskiptabanka 365 miðla um endurfjármögnun á öllum lánum félagsins. Gert sé ráð fyrir að lánin verði greidd hratt niður á næstu árum. Fjármagnskostnaður hafi þegar lækkað verulega vegna þessa og betri vaxtakjara.

Ingibjörg S. Pálmadóttir á 90 prósent af A-hlutabréfum 365 miðla ehf. og öll B-hlutabréf, sem ekki fylgir atkvæðisréttur í félaginu en þau eru fimmtungur hlutafjár. Ari Edwald á sex prósenta hlut af A-hlutabréfum og fimmtán aðrir hluthafar eiga fjögur prósent.

- sv






Fleiri fréttir

Sjá meira


×