Marel úr Kauphöllinni eftir tvö ár 20. mars 2011 15:15 Marel. Myndin er úr safni.
Talið er að fyrirtækið Marel verði skráð á erlendan markað eftir tvö ár samkvæmt fundargerð sem DV greinir frá á heimasíðu sinni. Þar segir að fundargerðin sé frá félaginu Horni, fjárfestingafélagi í eigu Landsbankans, sem fór með stóran hlut í Marel. Samkvæmt DV þá eru reifaðar hugmyndir í fundargerðinni um skráningu Marel á erlendan markað og því verður fyrirtækið skráð úr Kauphöllinni. Það verður hinsvegar ekki fyrr en eftir tvö ár í fyrsta lagi þar sem stjórnendur sjá ekki hag í því strax. Horn fjárfestingarfélag ehf. seldi hlut sinn í Marel fyrr í vikunni og fékk tólf milljarða króna fyrir. Þessum viðskiptum var flaggað í Kauphöllinni en um var að ræða stærstu einstöku hlutabréfaviðskipti þar frá hruninu. Um var að ræða 13,8% hlut en Eyrir Invest, sem er kjölfestuhluthafi Marels, keypti rúm 3% og er eftir sem áður stærsti hluthafinn með 34,7% hlut. Á móti þessum kaupum seldi Eyrir stóran hlut í Össuri hf. Talið er að lífeyrissjóðir hafi keypt mikið af þeim hlutum sem Horn seldi. Marel er verðmætasta fyrirtæki Kauphallarinnar en það er metið á 91,5 milljarða króna. Nýlega var stoðtækjaframleiðandinn Össur skráður úr Kauphöllinni og síðan inn í hana aftur eftir einhliða ákvörðun Kauphallarinnar. Hægt er að nálgast frétt DV hér.
Mest lesið Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Sjá meira