Halli 41 milljarði yfir áætlun 26. júlí 2011 00:01
efnahagsmálTekjujöfnuður ársins 2010 var neikvæður um 123 milljarða króna, sem er 41 milljarði króna verri afkoma en gert var ráð fyrir í fjárheimildum ríkisins. Hallinn nemur 26 prósentum af heildartekjum ársins og 8 prósentum af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í ríkisreikningi sem kynntur verður í dag. Tekjuáætlun stóðst nokkurn veginn, en gjöldin voru 42 milljörðum króna hærri en gert var ráð fyrir. Munar þar mest um 33 milljarða viðbótarframlag til Íbúðalánasjóðs. Tekjujöfnuður ársins 2009 nam 139 milljörðum króna og staðan á ríkisreikningi fer því batnandi. Tekjur ársins 2010 urðu alls 479 milljarðar króna, en það nemur 31 prósenti af landsframleiðslu ársins. Þær jukust um 39 milljarða frá árinu 2009, þegar þær voru 440 milljarðar króna. Aukningin skýrist að mestu leyti af tryggingargjöldum, sem eru 18 milljarðar, og skattar á tekjur og hagnað einstaklinga voru rúmum 5 milljörðum króna hærri 2010 en árið áður. Skattar á tekjur og gjöld lögaðila lækkuðu hins vegar um 13 milljarða króna milli ára. Gjöld ríkissjóðs árið 2010 námu 601 milljarði króna og voru 42 milljörðum króna hærri en fjárheimildir gerðu ráð fyrir. Gjöldin jukust um fjögur prósent frá árinu 2009. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að í grófum dráttum hafi náðst sá árangur sem að var stefnt varðandi rekstur ríkisins árið 2010. Óreglulegir liðir séu hins vegar hærri, en þar muni mest um framlagið til Íbúðalánasjóðs. „Það framlag verður að afskrifa þar sem fjárhagsstaða sjóðsins býður ekki upp á að það sé eignfært. Það er auðvitað dálítið kjaftshögg sem bókhaldslega kemur á ríkið.“ Steingrímur segir að sá árangur sem að var stefnt, að draga úr útgjöldum og halda uppi tekjum, hafi fyllilega náðst, ef eitthvað er heldur betur árin 2009 og 2010 en áætlanir hafi gert ráð fyrir. „Hið sama má segja um það sem af er þessu ári. Eftir fyrstu sex mánuði erum við vel á áætlun. Tekjur eru heldur yfir áætlun og útgjöld undir. Allt tal og hræðsluáróður manna um eitthvað annað er einfaldlega á vanþekkingu eða misskilningi byggt.“- kóp
Mest lesið Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Sjá meira