Lánþegi Fons bendlaður við glæpi 12. júlí 2011 00:01 Pálmi Haraldsson
Eignarhaldsfélag í Panama, sem Fons Pálma Haraldssonar lánaði þrjá milljarða árið 2007, er í kanadíska dagblaðinu Gazelle bendlað við peningaþvætti fyrir fyrrverandi forseta Níkaragva. Félagið heitir Pace Associates. Skiptastjóri þrotabús Fons hefur í tvö ár reynt að grafast fyrir um það hvað varð um milljarðana þrjá sem lánaðir voru 2007. Lánasamningurinn var ekki útbúinn fyrr en viku eftir að féð var millifært og afskrifað samdægurs. Skiptastjórinn íhugar nú að stefna stjórn Fons til greiðslu skaðabóta vegna lánveitingarinnar. Litlar sem engar upplýsingar hefur verið að hafa um félagið Pace Associates en það dúkkaði upp í umfjöllun Gazelle í maí, þar sem er fullyrt að forráðamenn félagsins, Francis Perez og Leticia Montoya, hafi notað það til að þvætta peninga fyrir Arnoldo Aleman, sem var forseti Níkaragva frá 1997 til 2002. Hann var árið 2003 dæmdur í tuttugu ára fangelsi fyrir margvísleg fjársvik, en hæstiréttur landsins ógilti síðar dóminn. Þeir Perez og Montoya eru sagðir vera í forsvari fyrir um tvö þúsund fyrirtæki í Panama. Fram kom í skriflegu svari Pálma til fréttastofu RÚV í gær að lánið hafi ekki verið afskrifað heldur fært niður af varúðarástæðu. „Eins og þetta var kynnt fyrir mér var um að ræða áhættufjárfestingasjóð, sem meðal annars fjárfesti í fasteignaverkefnum víða um heim, þar með talið á Indlandi. Um var að ræða ákvörðun sem ég tók og fól það í sér að félagið væri lánveitandi, en ekki hluthafi í viðkomandi verkefnum. Með því taldi ég stöðu þess betri. Í raun ekki ósambærilegt við ótryggðar lánveitingar, t.a.m. lífeyrissjóða hér á landi fyrir hrun.“ Þá segir í svari Pálma að endurskoðandi Fons hafi fengið það svar frá Landsbankanum í Lúxemborg að vafi væri á því að krafan myndi innheimtast. Á þeim grundvelli hafi verið ákveðið að afskrifa lánið í bókum Fons en ekki gagnvart lántaka. - sh
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Viðskipti erlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Sjá meira