Sæstrengur gæti haft áhrif á útgjöld heimila Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar 6. júlí 2011 10:00 Gangi áætlanir Landsvirkjunar eftir gæti breytt áhersla í rekstri skilað tugmilljörðum í þjóðarbúið. Mynd/Anton
Rafmagnsreikningur íslenskra heimila gæti orðið sambærilegur við það sem þekkist í Evrópu gangi áætlanir Landsvirkjunar um lagningu sæstrengs héðan og til meginlands álfunnar eftir á næstu árum. Þetta kemur fram í skýrslu GAMMA um efnahagsleg áhrif af rekstri og arðsemi Landsvirkjunar til ársins 2035. Lagning sæstrengs helst í hendur við framtíðarsýn Landsvirkjunar sem byggir á tvöföldun raforkuframleiðslu fram til 2025 og virkjanaframkvæmdum af ýmsum toga sem gæti skilað þjóðarbúinu tugmilljörðum króna í arð á ári. „Sæstrengur er ekki á dagskrá hjá okkur í dag. Við þurfum tvö til þrjú ár í viðbót í greiningarvinnu. En við sjáum hann sem mjög áhugaverðan kost sem við erum að kynna okkur,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Hann kynnti skýrsluna í síðustu viku ásamt fulltrúum GAMMA. Landsvirkjun hóf í fyrra að gera mat á arðsemi sæstrengs á milli Íslands og meginlandsins og stendur sú vinna enn yfir. Hörður bendir á að eftir því sem raforkuverð hækki hér þá dragi úr arðsemi sæstrengs. Á móti komi orkuöryggi og bætt nýting á dreifikerfinu. Það sé helsta ástæða þess að verið sé að tengja saman nær öll raforkukerfi heimsins. Með sæstreng væri jafnt hægt að flytja umframorku héðan og aftur hingað ef nauðsyn krefði. Í skýrslu GAMMA kemur fram að um leið og íslenska raforkukerfið tengist því evrópska þá muni verðbilið á milli þessara svæða líklega minnka og meðalverð Landsvirkjunar hækka. Bæði muni verð fyrir þá raforku sem seld er úr landi hækka auk þess sem orkusala innanlands muni verða fyrir töluverðum áhrifum þar sem samningastaða Landsvirkjunar gagnvart orkukaupendum muni batna verulega. Þótt þetta eigi öðru fremur við um orkusölu til stórra viðskiptavina Landsvirkjunar sem eru með stöðuga orkunotkun, þá geti það snert heimilin í landinu. Hnýtt er við að hærra raforkuverð fyrir heimili landsins kunni ekki að vera að öllu leyti slæm þróun ef fundnar verði leiðir til þess að nýta arðinn af orkusölunni til að bæta landsmönnum upp kaupmáttarrýrnunina. Þá er tekið fram að hærra raforkuverð til almennings ætti óhjákvæmilega að kalla á hagkvæmari, skynsamlegri og skilvirkari notkun rafmagns í samræmi við kostnað. Skýrsluhöfundar taka fram að stjórnvöld hafi ákvörðunarvald um áhrif raforkuverðs á heimilin enda kunni svo að fara að hið opinbera eignist sæstrenginn þegar fram líði stundir.
Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira