Yfirfara kröfur ESA um ólöglega aðstoð 2. júlí 2011 09:00 ESA hefur úrskurðað að kaup Íbúðalánasjóðs á fasteignalánum sparisjóða hafi falið í sér ólögmæta ríkisaðstoð í einhverjum tilvikum. Nú þarf að meta hver kaup fyrir sig og svara stofnuninni. Mynd/Vilhelm
Fulltrúar í ráðuneytum og Íbúðalánasjóði fara nú yfir hvað úrskurður ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, um ólögmæta ríkisaðstoð þýði. Stofnunin úrskurðaði að kaup Íbúðalánasjóðs á fasteignaveðum fjögurra sparisjóða hefðu falið í sér ólögmæta ríkisaðstoð. Alls keypti sjóðurinn 7.600 lán fyrir 29 milljarða. ESA úrskurðaði að endurheimta þyrfti óleyfilega aðstoð eigi síðar en í lok október 2011. Stjórnvöld hafa frest til loka ágúst að svara erindinu bréflega. Ljóst er að endurheimtur munu ekki nema 29 milljörðum, en endurmeta þarf hvert lánasafn fyrir sig og sjá hvort greitt hafi verið markaðsverð fyrir. Endurkrafan, ef af verður, mun því snúa að mismun á greiddu verði og markaðsverði, sé hann fyrir hendi. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra segir að embættismenn fari nú yfir úrskurðinn og hvaða þýðingu hann hafi. Ljóst sé að sé endurkrafa fyrir hendi muni það á endanum koma ríkissjóði, og þar með almenningi, til góða. Ríkið eigi þá kröfu á bú sparisjóðanna. Sparisjóðirnir sem um ræðir eru Spron, Sparisjóður Keflavíkur, Sparisjóður Bolungarvíkur og Byr. „Það eru efnisleg rök fyrir því að þetta hafi verið heimilt að einhverju leyti. Það er of snemmt að segja hvað verður úr þessu. Það verður að fara yfir þetta, skjal fyrir skjal," segir Guðbjartur. Aðstoðin sem um ræðir byggir á neyðarlögunum.guðbjartur HannessonGunnhildur Gunnarsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs Íbúðalánasjóðs, segir að málið byggi að verulegu leyti á því að ákvörðunin var ekki kynnt ESA fyrirfram. Þegar af þeirri ástæðu sé hún talin ólögmæt. Í álitinu kemur fram að þar sem enginn formlegur markaður var með bréfin sé erfitt að segja til um markaðsverð. Þá er gagnrýnt að heimildin sé óbundin ákveðinni fjárhæð og ekki sett á hana tímamörk. Ljóst er að Alþingi mun þurfa að breyta lögum hvað aðstoðina varðar þegar það kemur saman í september. „Það sem stendur upp á stjórnvöld er að sýna fram á að þetta hafi verið eðlilegur gjörningur en ekki ríkisaðstoð," segir Gunnhildur. „Þetta var klárlega gert til þess að gera sparisjóðum og fjármálafyrirtækjum kleift að losa sig við eignir sem voru ekki seljanlegar og fá í staðinn íbúðabréf, sem eru ígildi lausafjár." kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Rauður dagur í Kauphöllinni Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Sjá meira