Árleg fjárfesting var um tíu milljarðar 8. júní 2011 07:00 Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson
Fjárfesting í sjávarútvegi var um níutíu milljarðar króna frá 2001 fram til ársins 2009, að sögn Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Hann hafnar alfarið fullyrðingu Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar og varaformanns sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, um að fjárfesting í sjávarútvegi hafi nánast engin verið um langt árabil. Ólína fullyrti þetta í Fréttablaðinu í fyrradag og sagði gagnrýnendur á frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafa farið fram úr sér í útreikningum á efnahagslegum áhrifum breytinganna sem þar eru boðaðar.Sigurgeir Brynjar KristgeirssonSigurgeir Brynjar hefur tekið saman tölur um fjárfestingar byggðar á ársreikningum fyrirtækja sem voru handhafar 55 til 85 prósenta aflaheimilda á árunum 2001 til 2009, sem Sigurgeir telur gefa glögga mynd af sjávarútveginum í heild. Fyrir hrun krónunnar var meðaltal fjárfestinga í landi og á sjó um tíu milljarðar á ári, að því gefnu að ársreikningar sem Sigurgeir hefur skoðað endurspegli greinina í heild. Það eru sjö til átta prósent af tekjum greinarinnar. Hann telur þá áætlun varfærna. „Ef tekjurnar í fyrra eru skoðaðar, eða eftir hrun, væri eðlileg fjárfesting í greininni sextán til átján milljarðar, miðað við átta prósent af tekjum. Hins vegar er augljóst í tölunum að sú fjárfesting hrapar niður í um fjögur prósent árið 2009," segir Sigurgeir. „Fyrirtækin ákváðu með öðrum orðum að hætta fjárfestingum árið 2008. Þarna er ég bara að tala um fjárfestingar í fasteignum; vélum, búnaði, tækjum og skipum." Sigurgeir telur að eðlileg fjárfesting til viðhalds fasteigna og búnaðar sé um tíu prósent af tekjum sjávarútvegsfyrirtækis í venjulegu árferði. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira