Fannst lánin óeðlileg en afgreiddi þau samt 31. maí 2011 06:00 Vísa hver á annan. Ragnar (lengst til vinstri) segir Jón Þorstein (annan frá hægri) hafa átt frumkvæðið að viðskiptunum. Jón Þorsteinn segir alla ábyrgð liggja hjá Ragnari. Styrmir (lengst til hægri) segist engu hafa ráðið um málefni Byrs.Fréttablaðið/gva
Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Byrs, gekkst við því fyrir rétti í gær að hafa þótt óeðlilegt og óþægilegt að láta sjóðinn lána félaginu Exeter Holding milljarð króna til að leysa sjálfan sig og aðra starfsmenn og stjórnarmenn Byrs úr skuldaklemmu. Með lánunum var allri áhættu komið af herðum þeirra og MP banka, yfir á Byr. Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður sjóðsins, sem er ákærður fyrir umboðssvik í málinu eins og Ragnar, sagði jafnframt vel kunna að vera að honum hafi þótt tengsl sín við málið óeðlileg á sínum tíma. Þrátt fyrir þessa ónotatilfinningu æðstu manna sjóðsins liggur fyrir að eftir fund með bankastjóra MP banka í byrjun október 2008 var ákveðið að dótturfélag MP banka, Fleða ehf., myndi kaupa stofnfjárbréf í Byr af Jóni Þorsteini, félaginu Húnahorni sem var meðal annars í eigu Ragnars og öðrum starfsmönnum og stjórnarmönnum Byrs. Byr myndi lána Fleðu fyrir kaupunum. Ástæðan var sú að MP banki var farinn að ókyrrast vegna ástandsins á fjármálamörkuðum og kaus að gjaldfella lán sem hann hafði veitt þessum aðilum til stofnfjárkaupanna á sínum tíma. Þetta leist Ragnar og Jóni Þorsteini illa á og ákváðu að funda með Styrmi Þór Bragasyni, forstjóra MP banka, og reyna að finna lausn á málinu, með framangreindri niðurstöðu. Nokkrum dögum seinna var reyndar skipt um kaupanda. Fleða var ekki lengur inni í myndinni og félag í eigu Ágústs Sindra Karlssonar, hægri handar Margeirs Péturssonar, stjórnarformanns MP banka, var tekið við. Það öðlaðist síðar nafnið Exeter Holding, sem málið er kennt við. Þetta var gert vegna þess að MP banki – þar með talin dótturfélög bankans – mátti ekki við því að taka meiri lán á þeirri stundu. Ragnar og Jón Þorsteinn segjast hins vegar báðir hafa staðið í þeirri trú að Exeter væri á vegum og ábyrgð MP banka en viðurkenna að það hafi aldrei verið kannað. Ragnar og Jón Þorsteinn vísuðu að öðru leyti ábyrgð hvor á annan. Ragnar sagði að allt frumkvæði að lánveitingunum, sem sérstakur saksóknari telur hafa orðið Byr til mikils tjóns, hefði komið frá Jóni Þorsteini. Jón Þorsteinn hefði jafnvel kynnt málið fyrir honum þannig að það væri frágengið. Jón Þorsteinn benti á móti á að öll formleg ábyrgð á lánveitingum af þessu tagi lægi hjá sparisjóðsstjóra. Þrátt fyrir þetta virtist fara prýðilega á með tvímenningum. Þriðji sakborningurinn, Styrmir Þór, er ákærður fyrir hlutdeild í brotunum og peningaþvætti, fyrir að taka við meintu illa fengnu fé sem bankastjóri MP banka. Hann sagðist hins vegar einfaldlega hafa starfað með hag MP banka að leiðarljósi og engin áhrif getað hafa haft á ákvarðarnir innan Byrs. Ólafur Kristinn Ólafs, regluvörður Byrs, kom fyrir dóminn og sagði að hroll hefði sett að sér þegar hann hefði áttað sig á því að Byr hefði fjármagnað kaupin á bréfum starfsmanna og stjórnarmanna. Honum hefði „að sjálfsögðu“ þótt það óeðlilegt. „Ég hefði aldrei hleypt þessu í gegn,“ sagði hann í yfirheyrslu hjá lögreglu, þótt hann hefði ekki haft völd til að stöðva lánveitingar. „Ég hefði gert mig mjög óvinsælan,“ sagði hann í dómnum. „Ég hefði gert meira en ég taldi mig geta gert.“ Mjöll Flosadóttir, forstöðumaður innri endurskoðunar bankans, var sammála. Eins og Ólafur vissi hún um framsal stofnfjárbréfa kollega sinna en ekki um fjármögnunina. „Það hefði líklega breytt viðbrögðum manns ef maður hefði vitað þetta,“ sagði hún. Carl H. Erlingsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Byr, sem átti sæti í lánanefnd bankans, segist fyrst hafa frétt af lánveitingunum í lok árs 2008, enda afgreiddi Ragnar þær einn og sniðgekk lánanefndina, eins og stjórnina. Carl segist hafa lýst yfir megnri óánægju með málið þegar hann komst á snoðir um það, ekki hefðu verið forsendur fyrir viðskiptunum enda Byr í raun verið í útlánastoppi vegna ástandsins. Aðalmeðferð málsins heldur áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum Viðskipti innlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records Sjá meira