Erum í óþægilega góðri æfingu 23. maí 2011 03:00 guðjón arngrímsson „
Staðreyndin er sú að við erum í óþægilega góðri æfingu síðan í fyrravor. Það vefst ekki fyrir okkur hvað þarf að gera þegar svona lagað fer í gang," segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, um viðbrögð fyrirtækisins vegna eldgossins í Grímsvötnum. Hann bætir við að meðan framhaldið sé enn óljóst séu aðgerðir einungis skipulagðar hálfan dag fram í tímann. „Það er of snemmt að hugsa um langtímaáhrifin. Nú fyrst í stað eru helstu verkefnin sem þarf að leysa úr taktísk. Að ná sambandi við þúsundir viðskiptavina um allan heim, sem allir þurfa á sinni persónulegu lausn að halda." Öllu flugi Icelandair nú í morgun hefur verið aflýst, en alls voru um sex þúsund farþegar bókaðir í þau flug sem felld voru niður síðasta rúma sólarhringinn. Guðjón fundaði í gærmorgun ásamt fulltrúum stjórnvalda og fleiri aðilum úr flug- og ferðaþjónustu, en Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra varð innlyksa á Hornafirði og komst ekki á fundinn. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, sem einnig var á fundinum, segir tilgang hans einkum hafa verið að fá réttar upplýsingar frá almannavörnum og gæta þess að réttum upplýsingum sé komið til skila til fólks, fyrirtækja og fjölmiðla, innanlands og utan. „Við vonumst bara til þess að gosið verði ekki langvarandi," segir Erna, en hópurinn fundar aftur fyrir hádegi í dag.- kg
Mest lesið Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Snúsari sem missti andann yfir Óla Stef og Johnny Depp Atvinnulíf Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Ný könnun: 60% umsækjenda fá aldrei svör Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Sjá meira