Málarekstri hætt ef Icesave er greitt upp 20. maí 2011 07:00 Verðmæti eigna þrotabús gamla Landsbankans hækkaði um sjötíu milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins.Mynd/Valli „
Okkur sýnist að ef samningur við bresk og hollensk stjórnvöld hefði verið samþykktur væri hreinn kostnaður ríkissjóðs vegna Icesave-krafna nú kominn niður í tíu til fimmtán milljarða króna. Ef þróunin heldur áfram félli ekkert á ríkissjóð miðað við fyrri forsendur," segir Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis. Icesave-samkomulagið var fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu í apríl og gæti málið endað fyrir dómi. Skilanefnd og slitastjórn Landsbankans kynntu í gær uppfært verðmat á eignum hans. Samkvæmt því verða 94 til 99 prósent af forgangskröfum greidd. Í matinu er ekki að fullu tekið tillit til áætlaðs söluverðmætis 67 prósenta eignarhlutar í bresku matvörukeðjunni Iceland Foods. Hluturinn hefur verið settur í söluferli og eru líkur á að hann verði seldur fyrir áramót. Þetta er stærsta eign gamla bankans. Breskir fjölmiðlar hafa um skeið sagt verðmætið allt að tveimur milljörðum punda, jafnvirði um 370 milljarða króna. Samkvæmt Icesave-samkomulaginu sem kosið var um í byrjun apríl voru líkur á að 32 milljarða króna vaxtagreiðsla félli á ríkissjóð. Fjármálaráðuneytið reiknaði áætlaðan vaxtakostnað samkvæmt nýja verðmatinu í gær. Guðmundur bendir á að vextir og gjöld lána sem greiða átti breskum og hollenskum stjórnvöldum lækki eftir því sem fyrr verði greitt úr búi bankans. Áætlað er að fyrsta hlutagreiðsla verði greidd út fyrir áramót. Sú greiðsla gæti numið allt að þriðjungi forgangskrafna. „Við vorum búin að gera ráð fyrir því að heimtur myndu batna. Þetta er jákvætt," segir Lárus Blöndal, sem sæti átti í samninganefnd Íslands í Icesave-deilunni.- jab
Tengdar fréttir ESA fer yfir svör stjórnvalda „Ef stjórnvöld sýna fram á að þau muni greiða Icesave-kröfuna eða semja við bresk og hollensk stjórnvöld þá munum við ekki fara með málið fyrir EFTA-dómstólinn," segir Per Sanderud, forseti ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. 20. maí 2011 06:00 Mest lesið Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira
ESA fer yfir svör stjórnvalda „Ef stjórnvöld sýna fram á að þau muni greiða Icesave-kröfuna eða semja við bresk og hollensk stjórnvöld þá munum við ekki fara með málið fyrir EFTA-dómstólinn," segir Per Sanderud, forseti ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. 20. maí 2011 06:00