Segir höft halda gengi krónu óeðlilega lágu 19. maí 2011 07:30 Páll Harðarson forstjóri Kauphallar Íslands segist ekki vita til þess að mat hafi verið lagt á kostnað við gjaldeyrishöft hér á landi. „Það mat er þá vel falið í skúffu einhvers staðar,“ sagði hann á fundi í Valhöll í gær. Fréttablaðið/Valli
Ótti við hrun krónunnar við afnám gjaldeyrishafta er ástæðulaus að mati Páls Harðarsonar, forstjóra Kauphallarinnar. Hann telur afnám haftanna líklegra til að ýta undir styrkingu gengisins en hitt. Páll gagnrýnir harðlega áætlun Seðlabankans og stjórnvalda um afnám gjaldeyrishaftanna og segir skorta á rökstuðning fyrir nauðsyn haftanna. Hann flutti í gær erindi um höftin á opnum fundi Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Páll bendir á að hagstærðir séu í flestum tilvikum hagstæðar og ættu fremur að ýta undir styrkingu gengis krónunnar en hitt. Þannig sé raungengi krónu fimmtungi undir meðaltali síðustu þrjátíu ára og helstu hagstærðir sýni að gengi hennar sé vanmetið, um það séu helstu hagfræðingar sammála. „Höftin gætu haldið genginu óeðlilega lágu um langt skeið og þar með dregið úr kaupmætti almennings,“ segir hann og bendir á að gjaldeyrishöft hækki fjármagnskostnað þjóðarinnar, dragi úr tiltrú á hagkerfinu og takmarki aðgengi þjóðarinnar að fjármagni. „Höftin endurspegla trú stjórnvalda á eigin verk,“ segir Páll og telur að afnám þeirra myndi leiða til hækkunar lánshæfismats landsins og flýta fyrir styrkingu gengis krónunnar. Þá bendir Páll á að viðvarandi gjaldeyrishöft og óskýr áætlun um afnám þeirra dragi úr aga við ákvarðanatöku vegna skorts á skýrum markmiðum til að stefna að. Þá skýli gjaldeyrishöft stjórnvöldum fyrir afleiðingum lélegra ákvarðana, verji atvinnulífið fyrir samkeppni og beini einkaaðilum úr arðbærum verkefnum í „rentusókn“. Páll segir erfitt að meta kostnað við gjaldeyrishöftin, sem í sjálfu sér búi til hvata til að viðhalda þeim. „Á Austurvelli er enginn mælir sem tifar og sýnir hversu mörgum milljörðum þjóðarbúið verður af í hverjum mánuði.“ Aðferðafræðin um afnám haftanna krefst, að mati Páls, gagngerrar endurskoðunar, en áætlunin sem kynnt hafi verið um afnám hafta sé bæði svartsýn og lítt rökstudd. Undir það hafi meðal annars verið tekið í greiningu JP Morgan í aprílbyrjun. Þá segir hann veikt gengi á markaði með aflandskrónur ekki vera vísbendingu um gengisþróun krónunnar. „Gjaldeyrishöftin halda aflandsgenginu lágu,“ segir Páll og telur að afnema megi gjaldeyrishöft á nokkrum mánuðum. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Bæta við sex nýjum Airbus-vélum Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Fleiri fréttir Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Sjá meira