Róttæk endurskipulagning að baki 1. apríl 2011 00:00 Múrtankur Arion banki segir að vörður hafi verið staðinn um sérfræðiþekkingu BM Vallár þrátt fyrir endurskipulagningu. Fréttablaðið/Valli
Frestur til að skila inn tilboðum í BM Vallá hf. er til 2. maí næstkomandi. Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu allt hlutafé í fyrirtækinu, en það er í eigu Eignabjargs, dótturfélags Arion banka. Eftir að tilboðum hefur verið skilað inn verða valdir fjárfestar sem fá aðgang að frekari upplýsingum um félagið áður en óskað verður eftir bindandi tilboðum og gengið til endanlegra samninga. Fram kemur í tilkynningu Arion banka í gær að söluferlið sé opið öllum fjárfestum sem uppfylli skilyrði um „viðeigandi þekkingu og fjárhagslegan styrk". Gert er ráð fyrir að allt hlutafé í félaginu verði selt í einu lagi. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur umsjón með söluferlinu, en bankinn tók yfir rekstur fyrirtækisins í fyrra. Róttæk endurskipulagning er sögð að baki hjá BM Vallá og kostnaðaruppbygging sögð hafa verið löguð að núverandi efnahagsástandi. Framleiðslugeta fyrirtækisins er engu að síður sögð geta annað meðalári án þess að til mikilla fjárfestinga þurfi að koma. „BM Vallá er eitt stærsta framleiðslufyrirtæki innan byggingariðnaðarins á Íslandi og er vörumerki þess sterkt. Fyrirtækið starfar á sviði steypu-, hellu-, eininga- og múrframleiðslu sem og vikurvinnslu," segir í tilkynningu bankans.- óká
Fréttir Mest lesið „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Hvetja ESB til að láta ekki undan þrýstingi á ETS-kerfið Viðskipti erlent Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Viðskipti innlent Þessi eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna Viðskipti Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Viðskipti innlent Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Viðskipti innlent Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Samstarf Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Sjá meira